Frumvarp sjálfstæðismanna um skattlagningu - STRAX -á inngreiðslu séreigna lífeyrissparnaðar!

Engin spurning ríkið fengi 75 milljarða og sveitarfélögin 40 milljarða strax á næsta áti. Þetta eru ótvíræð bjargráð fyrir fjárlagagatið sem á að hrinda í framkvæmd strax - Ekki orð um það meir Jóhanna og Steingrímur - þið getið bara látið eins og þetta sé "ykkar hugmynd"!

Bara koma þessu bjargráði í framkvæmd - STRAX - !


mbl.is Vilja afla tekna með skattlagningu séreignasparnaðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Því í ósköpunum er ekki orðið við framsalsbeiðni stjórnvalda í Braselíu - og maðurinn sendur til síns heima?

Það ætti ekki mikið að vera í veginum fyrir því að endursenda slíkan mann þegar gerð krafa um að fá hann endursendan.

Það losnar þá eitt pláss - fyrir annan þurfandi.

Hver er það sem greiðir fyrir uppihaldið á honum hér í tukthúsinu - eru það íslenskir skattgreiðendur ?


mbl.is Gæsluvarðhald Brasilíumanns enn framlengt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áskorun til þingmanna Alþingis Íslendinga ! Tungumál Alþingis Íslendinga er - Íslenska!

"Þrenning órofa er - land - tunga - og þjóð"

Að ný liðnum degi íslenskrar tungu þykir það við hæfi að hvetja Alþingismenn til að standa vörð um vort tungumál - Íslenskuna - ekki einungis hið talaða mál í þinginu - einnig ritmálið.

Einarðlega eru þingmenn hvatir til að skerpa á virðingu fyrir íslenskri tungu - og ganga eftir því sem ófrávíkjanlegri kröfu að öll skrifleg gögn sem berast til Alþingis og ráðuneyta séu rituð á íslenska tungu eigi þau að fá umfjöllun þingsins.

Má þar vísa til dómstóla Íslands þar sem Íslenska er þingmál - þangað þarf að skila inn öllum málsgögnum á Íslenskri tungu að öðrum kosti er málum vísað frá.

Mál sem vert er að nefna í þessu samhengi og eru til umfjöllunar á Alþingi eru Icesave málið og ESB - öllum málsgörnum ber málsaðilum að skila til Alþingis á íslenskri tungu.

Er þessi áskorun hér með lögð í hendur þingmanna til framfylgni.


mbl.is Dagur íslenskrar tungu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig fer snona spillingarmat fram ? Auðvitað er gott að Íslandi er þó bolað í 8 - 10 sæti með Ástralíu og Kanada!

En ekki finnst mér þetta vera beint trúverðug röðun.

Ég hefði haldið að Noregur væri með minni spillingu en Ísland til dæmis.


mbl.is Ísland lækkar á spillingarlista
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir kunna ekki að skammastsín útrásar glæponarnir - Þeir eru bara með hroka og rífa kjaft!

"Athafnamaðurinn"! Hannes Smárason gerir rúmar 1.2 -  milljarða króna kröfu í þrotabú Landsbankans!

Komi það á daginn að hann hafi þessa kröfu lögvarða - þá hlýtur þessi krafa að verða yfirtekin af ríkinu eða haldlögð upp í skuldir Hannesar hér á landi. Ætlar maður rétt að vona.


mbl.is Lýsir 1,2 milljarða kröfu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir þingmenn sem ætla sér að ganga gegm þjóðarhagsmunum og veita Icesave ríkisábyrgð brautargengi - með atkvæði sínu á Alþingi - ættu virkilega að íhuga sína pólitísku lífdaga - vilji þeir að þeir vari lengur en til einnar nætur!

Þjóðin er nánast einhuga á móti því að vera bundin í skuldaánauð vegna glæfralegra fjármála kúnsta banka í einkaeigu og mótmælir því - HARÐLEGA - að  þjóðkjörnir fulltrúar á hinu háa Alþingi Íslendinga misnoti þingsetu sína með því að ganga gegn hagsmunum þjóðarinnar og Stjórnarskrá íslenska lýðveldisins - til hagsmuna fyrir erlenda fjárkúgara.

Þingmenn sem slíkt athæfi fremja eru sannkallaðir þjóðníðingar og föðurlandssvikarar - sem ekki munu eiga afturkvæmt til þingsetu - það munu kjósendur til Alþingis sjá um með atkvæðum sínum við næstkomandi kosningar til Alþingis!


mbl.is Ekki hætta á greiðsluþroti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Músarholur Steingríms Joð - Hann lætur ekki deigan síga í leit að nýjum músarholum í skattlagningar skyni - Hann Steingrímur!

Nú er það samsköttun hjóna sem er sterklegur vonarpeningur og svo eignaskatturinn sem hann horfir dreymandi til.

Stenst samsköttun hjóna nokkra skoðun:Hjón eru tveir einstaklingar þó þeir gangi fram sameiginlega til þess stöðugleika ákvarðana að ganga í hjónaband - þá halda þau hvor sinni kennitölu.

Samsköttunin myndi láta margt slæmt af sér leiða sem skoða ber alvarlega áður en út í slíkt er farið. Fólk tekur til varnar gegn slíkri aðför - til dæmis með skilnuðum.........!

Eignaskatturinn: Fólk hefur lagt mikið á sig með dugnaði - eljusemi og mikilli vinnu að eignast eitthvað - til dæmis bara þak yfir höfuðið - Fyrir flesta er það ekki fyrirhafnarlaust að eiga þak yfir höfuðið og greiðir fyrir það skatta margskonar.

Svo þegar eitthvað af þrældómnum hefur skilað sér í eign - þá á jú mikið rétt að greiða eignaskatt af því að hafa jafnvel þrælað sér til óbóta fyrir þaki yfir höfuðið..........!

Einhverstaðar verður mörkin að draga í skattheimtu siðleysinu Steingrímur.

Líttu nú á reynslu annarra þjóða Steingrímur - með skattlagningu út úr kreppu - það hefur hvergi reynst vera fær leið - þar sem sú leið hefur verið reynd. 

 

 


mbl.is Skattatillögur kynntar á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann hefur alltaf verið læginn við það - hann Jóhannes í Bónusað höfða til meðvirkni þjóðarinnar!

Hann heldur alveg uppteknum hætti með það nú - eins og fyrir hrun.

Það var ekki annað að skilja á honum í Kastljósi kvöldsins en allt væri í "gúddý" með Haga.

Hvað skyldi verða með Þjóðarhag - fjárfestingafélagið sem Guðmundur Franklín fer fyrir og er að skoða kauptilboð í Haga ?


mbl.is Munu ekki þurfa að afskrifa neitt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er nú meira hvað sumir geta verið að mæra hagfræðinginn Guðmund Ólafsson - Fyrir hvað ?

Rausið ? Sem oft var algjörlega úti á túni og tæplega boðlegt - Að hann sé svo mikill spekingur - fræðimaður og hagfræði vitringur - Neeeeeeeeei -

Ef hann stæði undir allri þessari mærð sem verið er að ausa á hann - þá héldi hann sig við skoðanir sínar á milli daga - en það gerir ekki Guðmundur Ólafsson.

Ég heyrði ekki rausið í honum á föstudaginn þetta sem fyllti mælinn - en ég hef nógu oft heyrt bullið í honum til að furða mig ekkert á því að Arnþrúður gæfi honum fríið - raunar er ég bara undrandi á langlundargeði hennar - og oft hef ég heyrt hana ausa á hann hóli sem mér hefur hann ekkert eiga skilið.

Hún Arnþrúður verður ekki í vandræðum með að fá hæft fólk sem gerir sig fyrir stöðina hennar.


mbl.is Guðmundur rekinn af Útvarpi Sögu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verið nú ekki of fljótir á ykkur með nauðvarnar ályktanir - þið áhyggjufullir ! Krafa Helgu Kress prófessors í bókmenntafræði - um innköllun á ný útkominni bók Böðvars Guðmundssonar!

Er ekki bara hismið eitt ! Viðbrögð útgefanda tala skýrt fyrir því að honum er ekki skemmt - honum er ekki sama!

Þess vegna reynir hann þá leiðina að gera lítið úr kröfuhafa ýjar svona að einhverskonar ímyndun - eða jafnvel bara "geðbilun" - að kröfuhafinn sem og er bókmenntafræðingur sé að ímynda sig inn í skáldsöguna......... og á öllu því rugli verði hún að taka ábyrgð sjálf.

Röksemdarfærsla sem sýnir órólegan útgefanda - sem alveg mætti skrifa um "skáldsögu".

Það er ekkert einsdæmi að "rithöfundar"hafi misnotað aðstöðu sína og nýtt sér líf annarra í "ímyndaða skáldsögu" bara plat skáldsögu - raunar frekar endursögn - sjálfum sér til framdráttar.

Í þessu máli sem fram kemur í viðhengdri frétt er ekki enn ljóst hver verður sigurvegarinn - þó annar sé augljósari en hinn !

Það á eftir að koma í ljós - bókmenntafræðingurinn lætur ekki hræða sig frá réttlætinu.

 


mbl.is Vill að bókin verði tekin úr umferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband