Færsluflokkur: Ljóð

Húsráð:

 

1. Ætlaðu þér ávallt nægan tíma fyrir gestamóttöku.

2. Hafðu vísan stað fyrir hvern hlut á heimilinu - þar sem þú getur gengið að honum vísum - þegar    þú þarft á að halda.

3. Keyptu blómvönd eftir stærð blómavasans.

4. Hafðu dótakassa fyrir leikföng baranna.

5. Kenndu börnunum að ganga frá leikföngunum sínum - svo þau liggi ekki í óreiðu út um öll gólf heimilisins.

6. Ef bjórdósir eru til á heimilinu - er best að hafa þær ávalt lokaðar - þannig valda þær ekki skaða -  af neinu tagi.


Bjórdósin:

Bagga var að flýta sér  - Hún átti von á gestum.

Hún leitaði og leitaði að skærum til að klippa neðan af blómvendi.

Stilkarnir voru of langir í vasann.

Þá rak hún sig í bjórdós sem stóð á borðinu - dósin var opin - hún valt um koll.

Það heltist bjór yfir leikfangahest sem sonur hennar hafði skilið eftir á gólfinu.

Æ - Æ - Ekki var þetta nú til að flýta fyrir.


Lífið.

Lífið er eins og antilbúð  - þar sem öllu ægir saman - ekkert er í röð og reglu - eða virkar þannig - þar til betur er að gáð......

Ef þú ferð á hraðferð í gegnum slíka búð - sérðu ekki neitt - allt rennur saman í eitt. Drasl - Drasl.

Þú sérð ekkert sem vekur áhuga þinn.

Veist í raun ekkert hvað er þar innan dyra.

Þú æddir framhjá gersemunum - án þess að taka eftir þeim.....

Þannig er heimurinn.

Þú getur ætt í gegnum hvern daginn af öðrum - án þess að grípa tækifærin - sem allsstaðar leynast - bara þú tækir eftir þeim......

Æða -  án þess að uppgötva innihald lífsins.......

Æða - án þess að finna samhljóminn við lífið sjálft......


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband