Fjallað var um málefni Íslands og lánveitingar - í norska þinginu í gær að beiðni þingmanns Framfaraflokksins Peter N. Myhre
Mikill stuðningur er við Ísland í norska þinginu og eins meðal Norðmanna almennt.
Kristin Halvordsen og hennar flokkur Vg. voru sterkt gagnrýndir fyrir framgöngu þeirra gegn Íslendingum.
Öll sú aðför að Íslandi sem verið hefur í gangi verður að taka enda og fyrst og síðast er fyrir okkur Íslendinga að stoppa þá lygamaskínu sem hefur verið og er í gangi hjá stjórnvöldum hér - nánar tiltekið þeim Jóhönnu og Steingrími sem er lágkúrunni einni líkast - það þarf ekki að vera með tæpitungu á því að þau ganga ekki eftir vegum sannleikans í þessu máli né öðrum - en ganga leynt og ljóst fram í því að blekkja þjóðina - þannig að með ólíkindum er. Það verður að stoppa.
Nánari umfjöllun má sjá á skulablogg.blog.is
![]() |
Segir norska lánið til reiðu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.11.2009 | 10:07
Gunnar Birgisson í prófkjör í Kópavogi !
![]() |
Gunnar gefur aftur kost á sér |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
19.11.2009 | 22:59
Knattspyrnusambandi Íslands er fórnað - fyrir siðlausa stjórn þess !
Stjórnin niðurlægir KSÍ gróflega með því að víkja ekki öll eins og hún leggur sig.
Með því sýndi hún að háttsemi forsvarsmanna KSÍ fyrir fjórum árum í Zurich í Sviss - var ekki í lægi og ekki í samræmi við virðingavert siðgæði - og það var ekki í lægi að halda siðleysinu leyndu.
Með því að sitja áfram er stjórnin að gefa skilaboð um sína afstöðu - þetta var í lægi svo lengi sem það fréttist ekki út fyrir "OKKAR" raðir.
Stjórnin á öll að segja af sér - hún getur gert það ennþá.
Knattspyrnusambandi Íslands er fórnað fyrir siðlausa stjórn þess.
![]() |
Stjórn KSÍ aðhefst ekki frekar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19.11.2009 | 21:15
Ég vil gefa - HRÓS - matreiðsluþáttunum hennar Jóhönnu Vigdísar á RÚV sjónvarp - þeir eru án nokkurs vafa bestu matreiðsluþættir sem sjónvarpið hefur sýnt !
Hafa þeir þó nokkrir verið á skjánum í gegnum árin - sannast sagna flestir bæði lélegir og leiðinlegir.
En þátturinn hennar Jóhönnu Vigdísar er í alla staði frábær - uppskriftirnar einfaldar - fljótlegar - praktískar og bragðast vel og Jóhanna Vigdís er skemmtileg við eldamennskuna.
Hún er góður kennari sýnir hvernig vinna á í eldhúsi - aðferðir við að matreiða - já og eldhús klæðnað - Jóhanna Vigdís er ekki með peysuermarnar fram á handabök og borðandi upp úr pottunum með sleifinni eða spaðanum - eins og einn þáttastjórnandi (útlendur) sem var lengi með matreiðsluþætti í sjónvarpinu fyrir nokkrum árum.
Takk fyrir góða þætti Jóhanna Vigdís - Góðir Þættir sem þola vel endursýningar.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Birgir Ármannsson Þingmaður Sjálfstæðisflokksins hóf máls á þessum mikilvæga þætti málsins - sem ekkert hefur verið ræddur í þinginu til þessa - en það hlaut að koma að því - eins og þessi þáttur málsins hefur mikið verið ræddur í bloggheimum og víðar utan þings.
Vonandi að þingið fái viðunandi umræður um Stjórnarskrárþáttinn í þessu grafalvarlega máli þó svo að augljóst hafi verið á undirtektum stjórnarþingmannsins Guðbjartar Hannessonar við undirtektir hans við Birgi Ármannsson - að hann vildi blása þessa umræðu af sem fyrst.
Guðbjartur Hannesson og aðrir stjórnarliðar vilja kannski heldur fá á sig málssókn vegna stjórnarskrárbrota.
Komið hefur fram í fréttum að erindi hefur verið sent til Umboðsmanns Alþingis af 26 einstaklingum gegn fjármálaráðherra Steingrími J. Sigfússyni vegna gjörninga hans í Icesave málinu með tilliti til Stjórnarskrár og stjórnsýslu brota.
![]() |
Stangast ekki á við stjórnarskrá |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.11.2009 | 11:22
Fyrirhugað mannréttindabrot félagsmálaráðherra Árna Páls Árnasonar á atvinnulausum ungmennum á aldrinum 15 - 24 ára - sem enn búa í foreldrahúsum!
Ráðherrann tjáði sig eins og honum einum er lægið - í Kastljós þætti - um sína fyrirhuguðu "fræðilegu" og "fagmannlegu" aðför að ungmennunum...........................................!
Það sem vakir fyrir ráðherranum er að skerða bætur til þessa hóps - undir því yfirskyni - að eftir hans fræðilegu rýni á þennan hóp ungmenna - þá sé það þessum hópi hollast að fá atvinnu þjálfun frá því opinbera - sem bótaskerðingin eigi að standa kostnað af.
Hvað er verið að gera með þessu - jú setja framfærslu ungmennanna yfir á foreldrana -
Að þiggja atvinnuleysisbætur fyrir ungmennin er staðfesting á því að þau eru reiknuð með í þjóðfélaginu og geti unnið - svo fremi þau fái vinnu við hæfi.
Hvernig er með atvinnu uppbyggingu stjórnvalda í þjóðfélaginu í dag - væri ekki vert að huga að þeim málum.
Þessi hópur ungmenna á rétt á að halda sínum bótum til jafns við aðra sem eru í sömu stöðu eða atvinnulausir.
Ætli ráðherrann sér að sjá til þess að umræddur hópur ungmenna fái atvinnu þjálfun - þá eiga þau að halda óskertum bótum á meðan atvinnuþjálfunin stendur yfir og þau hafa öðlast "atvinnufærni"að aflokinni - atvinnuþjálfuninni.
Fyrirmyndin að aðförinni sagði ráðherrann fengna frá "norrænu velferðarkerfunum" ???
Leyfi mér að efast um það að fyrirmyndin sé aðfengin - hún ber allt yfirbragð þess að um heimatilbúin brellubrögð ráðherrans sjálfs sé að ræða og hans föruneytis.
Eins og kreppuhala- löggjöf ráðherrans - sem hann setti heimilunum til höfuðs - en sögð var af ráðherranum að ætti að vera heimilunum til bjargar - því lík bellibrögð.
![]() |
Um 2.550 íslensk ungmenni á atvinnuleysisskrá |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.11.2009 | 23:55
Steingrímur í Kastljósinu - HÖRMUNG - Reynir að fleyta sér með -"Staðhæfingarsálarfræði nasista"- SVART er hvítt !
1 )Hafið þið ekki tekið eftir ? -" hvað allt er orðið mikið betra en búist var við" - 2 )"allt er svo mikið að lagast "- 3) "það er líka minna atvinnuleysi en búist var við "- 4 )"okkur er að ganga betur allt er svo mikið að lagast " -
"Áframhaldandi lægri skattar hér en í öðrum löndum" þrátt fyrir þessa skattahækkun núna..........!
Svo stillir hann stóreignafólki og barnafólki upp á móti hvert öðru - með því að stóreignaskatturinn eigi að greiða barnabætur til barnafólks - til að draga sjálfan sig frá ábyrgðinni á skattahækkununum.
Og viðmælandinn var nánast óvirkur - eins og verið hefur áður í Kastljósþáttum með Steingrími - hann bara stýrir umræðunni sjálfur - óboðlegur málflutningur - HÖRMUNG - !
![]() |
Stóreignafólk borgi barnafólki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
18.11.2009 | 20:19
Væri ekki nær fyrir stjórn Ungra vinstri grænna að "krefjast mannúðar" frá stjórnvöldum fyrir eigin landsmenn og heimilin í landinu!
![]() |
Írana vísað úr landi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
18.11.2009 | 17:46
Það hlaut að koma að því að - Steingrími Joð - yrði stillt upp frammi fyrir eigin "landráðagjörningi" !
Jóhanna - verður varla skilin útundan lengi ! - Það kemur að henni - ! - og fleirum meðsekum !
![]() |
Saka Steingrím um að brjóta gegn stjórnarskránni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)