Þeir þingmenn sem ætla sér að ganga gegm þjóðarhagsmunum og veita Icesave ríkisábyrgð brautargengi - með atkvæði sínu á Alþingi - ættu virkilega að íhuga sína pólitísku lífdaga - vilji þeir að þeir vari lengur en til einnar nætur!

Þjóðin er nánast einhuga á móti því að vera bundin í skuldaánauð vegna glæfralegra fjármála kúnsta banka í einkaeigu og mótmælir því - HARÐLEGA - að  þjóðkjörnir fulltrúar á hinu háa Alþingi Íslendinga misnoti þingsetu sína með því að ganga gegn hagsmunum þjóðarinnar og Stjórnarskrá íslenska lýðveldisins - til hagsmuna fyrir erlenda fjárkúgara.

Þingmenn sem slíkt athæfi fremja eru sannkallaðir þjóðníðingar og föðurlandssvikarar - sem ekki munu eiga afturkvæmt til þingsetu - það munu kjósendur til Alþingis sjá um með atkvæðum sínum við næstkomandi kosningar til Alþingis!


mbl.is Ekki hætta á greiðsluþroti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það verður munað eftir því hverjir svíkja þjóð sína,sérstaklega í komandi sveitarstjórnarkosningum.

Árni Karl Ellertsson (IP-tala skráð) 17.11.2009 kl. 16:36

2 Smámynd: Benedikta E

Ég á nú bara rétt von á því að það verði líka kosið til Alþingis í vor - ef ekki fyrr.

Benedikta E, 17.11.2009 kl. 17:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband