Mats Josefson fjármálaráðgjafi stjórnvalda hann fórnar ekki starfsheiðri sínum - með fyrir fram pantaðri álitsgjöf - Jóhönnu og Steingríms - NEI hann Jósefsson gagnríndi þau harðlega fyrir lélegan árangur við endurreisnarstarfið !

Hver eru viðbrögð Jóhönnu og Steingríms JÚ - að sjálfsögðu - hafa Mats Josefsson að háði og spotti og reyna að gera hann ómarktækann - þannig eru þeirra vanhæfu varnarhættir - þess vegna mistekst þeim allt sem þau koma nálægt - og miðar ekkert á leið.

Dettur einhverjum til hugar að ráðningarsamningur við Josefsson verði  endurnýjaður þegar samningur við hann rennur út um áramót - fyrst hann vogaði sér að segja sannleikann um lélegan árangur stjórnvalda - við endurreisnar-starfið ?

Það er ólíklegt að svo verði.........!


mbl.is Samningur við Josefsson rennur út um áramót
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Borgarstjórnar-kosningaspuni Samfylkingarinnar - TAKIÐ - nú - EFTIR - Fyrir Framsókn í Reykjavík !Glætan!

Oddný Sturludóttir borgarfulltrúi Samfylkingarinnar - er að troða kærastanum Einari Skúlasyni í framboð fyrir Framsókn í fyrsta sæti á lista í borgarstjórnarkosningunum í vor.

Einar hefur tilkynnt að hann ætli að bjóða sig fram á móti Óskari Bergssyni oddvita Framsóknarflokksins í Reykjavík.

Þarf Framsókn nú - ekki á einhverju frekar að halda - en innan flokks átökum.

Samfylkingar-fólkið er í tómu tjóni  með kosningabaráttu eigin flokks - sem hún hóf svo "glæsilega" með árás á Framsóknar- manninn Sigmund Davíð Gunnlaugsson.

En sú aðför snérist svo rækilega í andhverfu sína hjá  þeim að - Dagur B. Eggertsson þeirra eigin borgarfulltrúi og varaformaður Samfylkingarinnar lenti þess í stað á BERANGRI...............!

Lendir Einar Skúlason í sömu andhverfunni og Dagur B. Eggertsson ?


mbl.is „Framboðið kom á óvart“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lilja Mósesdóttir og Ögmundur eru bæði í viðskipta og skattanefnd - þau skila séráliti úr nefndinni yfir í fjárlaganefnd !

Þau tvö svíkja ekki þjóð sína - hvorki við fjárlagagerðina né heldur í Icesave málinu - þjóðin treystir á þau ásamt þeim Ásmundi Einari Daðasyni og Atla Gíslasyni.

Ekkert af þeim kemur til með að sitja hjá eða senda inn fyrir sig varamenn. Þau eru alvöru fólk sem  treystandi er - fyrir þinglegri ábyrgð.


mbl.is Þingflokkur VG fundar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ásmundur Einar Daðason þingmaður Vinstri grænna - var kosinn formaður Heimssýnar hreyfingar sjálfstæðissinna í Evrópumálum - á aðalfundi Heimssýnar í dag.

Ásmundi Einari og Heimssýn er óskað til hamingju með kosninguna - sem örugglega á eftir að eflast til dáða undir formennsku nýkjörins formanns.
mbl.is Ásmundur Einar nýr formaður Heimssýnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sóknarbörn Selfossprestakalls - er það nokkuð til að gera uppsteyt út af - að sameinast Hraungerðisprestakalli - úr því að Kirkjuþing tók völdin af biskupi í því máli?

Þá fáið þið tvo presta að velja um í sameinuðu prestakalli sr. Kristinn sem verið hefur þjónandi prestur í Hraungerðisprestakalli og svo annan með honum - Getið þið ekki farið fram á það við biskupinn að sr. Óskar yrði hinn presturinn ?
mbl.is Velja ekki sóknarprest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bellibrögðum Kaupþings og Bónusfeðga ógnað af alþýðunni - Þjóðarhagur er félag - hópur fjárfesta um kaup á Högum -Talsmaður þeirra Guðmundur Franklín Jónsson var í Silfri Egils og kynnti þau mál !

Ríkisbankinn Kaupþing á Haga - ekki feðgarnir eða Jóhannes kenndur við Bónus. Hagar skulda bankanum 50 milljarða............!

Félagið Þjóðarhagur vill nú gera Nýja Kaupþingi tilboð í Haga - sem gerir örugglega strik í þau bellibrögð sem uppi hafa verið í bankanum um afdrif Haga.

Þjóðarhagur er með vefsíðuna fhjodarhagur.is - þar getur fólk sem hefur áhuga á að verða aðilar að félagsskapnum skráð sig - í dag höfðu yfir tvö þúsund manns skráð sig á síðuna.


mbl.is Mikill áhugi á Högum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann leynir á sér hann Sigmundur Ernir Rúnarsson þingmaður Samfylkingarinnar - hann lætur ekki kúgun Jóhönnu buga sig til hlýðni við sam-kór Samfylkingarinnar !Ó - NEI - !

Hann talaði sínum rómi í Silfri Egils hann Sigmundur Ernir Rúnarsson - og hafði þar margt gagnlegt til málanna að leggja eftir "lúslestur" á fjárlagafrumvarpinu.

Hann tekur til varnar fyrir þjóð sína - hann Sigmundur Ernir - Hann lætur ekki kúgun og valdníðslu Jóhönnu breyta því.

Óvænt og jákvæð upp lifun fyrir landsmenn Sigmundur Ernir.


mbl.is Segir vel hægt að spara meira
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í viðtali við Financial Times gefur Eva Joly Íslendingum upplýsandi varnaðar orð um hvers meigi vænta af gangi mála hjá sérstökum saksóknara."Væntanlega sé um að ræða stæðstu rannsókn á hvítflibbaglæpum sögunnar" !

Tengsl séu mikil þvers og kruss meðal hvítflibbanna í kerfinu - pólitísk - fjölskyldu - vina - venslaðra - fjölmiðla...........!

Ennþá sé kerfið sjúkt !

Einnig að draga verði fólk til ábyrgðar - fyrstu ákærurnar væntanlegar í árslok 2010

Viðtalið er mjög upplýsandi og gagnlegt almenningi að kynna sér og lesa í heild sinni.

Vægt sagt eru eftirtektar verð fálætis viðbrögð íslenskra fjölmiðla við erlendum fjölmiðlaviðtölum við Evu Joly um starf hennar hér á landi það er áberandi hvað lítið sem ekkert er gert með viðtölin við hana.

Þá er í besta falli eins og í umræddu viðtali þá er algjört auka atriði ( Björk ) dregið fram og gert að aðal atriði - til að draga athyglina frá því sem öllu máli skiptir.

Óttinn við ábyrgðina og réttlætið getur leynst víða - þá er samtryggingin og leyndin nærtækasta vörnin. Spillingin !

Góðir landsmenn - höldum vöku okkar - látum ekki blekkjast og segjum frá !

Eva Joly er heil og traust íslensku þjóðinni.


mbl.is Vonaðist til að hitta Björk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

677 - andlitslausir og nafnlausir- fjárfestar vilja gera tilboð í Haga ?

Bragðar þetta nokkuð af útrásinni ? Eitt af einkennum útrásartímans var jú nafnleysi og andlitsleysi grósseranna.
mbl.is 677 vilja kaupa Haga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjóðfundur 2009 gæti skapað tímamót í íslensku þjóðlífi - ef eftirvinnan verður skilvirk til breytinga á því sem þarf að breyta !

Ég hef trú á því að svo verði. Trúlega þarf annað átak í einhverri mynd.

Ég þekki engan sem boðinn var til þjóðfundarins - En ég þekki marga sem hefðu viljað vera boðnir.

 


mbl.is Þjóðfundur hafinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband