Færsluflokkur: Dægurmál
Nú fyrst þegar Þingmannanefndin hefur skilað af sér sinni vinnu fleiri hundruð blaðsíðna vinnu - þá þjóta þingmenn fram hver á eftir öðrum fullir vandlætingar og gagnrýni á Landsdómi sem gamaldags og ónothæfum dómstól 2010 - þeir hinir sömu þingmenn sem samþykkt höfðu Þingmannanefndina til undirbúnings mála á ráðherra ábyrgð fyrir Landsdóm.
Af hverju gagnrýndu þeir hinir sömu þingmenn Landsdóm ekki fyrr - nú er það orðið of seint - eru þessir þingmenn sem nú - allt í einu byrja að gagnrýna og rakka niður Landsdóm - marktækir til þingstarfa - yfir höfuð?
Mörgum er misboðið - þessi óábyrga frammistaða þingmanna er ekki boðleg.
![]() |
Auka verður sjálfstæði þingsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Í ræðu sinni á Alþingi í dag um skýrslu Þingmannanefndarinnar - má segja að málflutningur Magnúsar Orra hafi skorið sig nokkuð úr - í ræðu sinni var Magnús Orri faglegur - málefnalegur - gagnrýninn og hafinn yfir flokkspólitík -
Hann sagði meðal annars í ræðu sinni - "Stjórnmálamenn sýndu ítrekað ógagnrýna samstöðu með bankamönnum fyrir hrun - og færðu ábyrgðina yfir á almenning"
En þar fór Samfylkingin í fararbroddi með skjaldborg í þágu fjármagnseigenda og útrásarinnar.
Með heiðarlegum málflutningi hefur Magnús Orri áunnið sér traust og virðingu þeirra sem á hann hlýddu - og sýnt að það er hægt að hefja sig yfir flokkspólitík - í þágu heildarinnar.
![]() |
Sýndu samstöðu með bankamönnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.9.2010 | 15:17
Er þetta alvöru manneskja ?
![]() |
Sprengjumaður óþekktur enn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.9.2010 | 13:44
Ríkisstjórnar-samstarf - Sjálfstæðisflokksins við Samfylkinguna - Voru stóru mistök Sjálfstæðisflokksins.
Samfylkingin er ekki stjórntæk með neinum - og Sjálfstæðisflokkurinn fékk að súpa seyðið af því.
Dýrkeypt reynsla - sem lærdómur verður dreginn af.
![]() |
Röng niðurstaða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.9.2010 | 12:32
Óli Björn Kárason vara þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur setið á Alþingi - í fjærveru Þorgerðar Katrínar.
![]() |
Þorgerður sest aftur á þing |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 12:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.9.2010 | 18:05
Þingmannanefndin:Réttlæti án landamæra og án allrar mismununar!
Sanngirnis afgreiðsla þingsins vegna ráðherraábyrgðar hrunstjórnarinnar 2008
Lögð verði fram þingsályktunartillaga um gildistöku Pólskuaðferðarinnar sem felur það í sér að ráðherrar þeir sem áttu sæti í hrunstjórninni 2008 - allir sem einn og einn sem allir verði hýru dregnir - þannig að eftirlaun - biðlaun eða allar aðrar launagreiðslur til þeirra frá ríkinu verði felldar niður. Ráðherrar þeir sem ef til vill eru enn í störfum hjá ríkinu og þiggja fyrir það laun láti samstundis af þeim störfum.
Rök fyrir niðurfellingu allra launagreiðslna er sú að ekki þyki ástæða til að umbuna fyrir meinta vanrækslu eða afglöp í störfum opinberra embættismanna.
Þingsályktunartillögur þingmannanefndarinnar varðandi ráðherraábyrgð fyrir landsdóm verði í framhaldi af framangreindu - lagðar á ís.
![]() |
Ekki þingmeirihluti fyrir ákæru á hendur Björgvini |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.9.2010 | 23:04
Þingmannanefndin:Vinnubrögð Samfylkingarinnar eru sumpart með jákvæðum formerkjum - en betur má ef duga skal.
Eðlilegt má teljast að Ingibjörg Sólrún axli sína ábyrgð - hún tók ráð og vald af viðskiptaráðherra Björgvini G.Sigurðssyni með því að halda honum fyrir utan þá vitneskju sem var á verksviði viðskiptaráðherra- og láta Össur Skarphéðinsson gegna hans störfum - Björgvin var vís ekki einssinni látinn vita þegar Glitnir banki var að hrynja.
Þegar Björgvin var að koma í fjölmiðla eftir hrunið og segjandi hægri vinstri að hann vissi ekki og hefði ekki heyrt - þá datt fáum til hugar að hann væri að segja satt - það fylgdi heldur ekki með að hann væri úti í kuldanum hjá Ingibjörgu Sólrúnu.
Jæja en sama var með varaformann Samfylkingarinnar Ágústsson - Ingibjörg Sólrún lét Össur mág sinn líka ganga inní hans hlutverk jafnhliða því að hann leysti Ingibjörgu Sólrúnu af í veikindum hennar.
En af hverju er Össur Skarphéðinsson ekki færður fyrir landsdóm - ætti hann ekki erindi þangað .
En þó að Ingibjörg Sólrún axli sína ábyrgð þýðir það ekki að Björgvin G.Sigurðsson hafi enga ábyrgð að axla - auðvitað á landsdómur að taka hans mál fyrir.
Eins er það Valgerður Sverrisdóttir fyrrum viðskiptaráðherra á einkavæðingartímanum og skrifaði hún þá bara undir afsalspappíra á Búnaðarbankanum - án þess að vita nokkuð um hvað kaupin snérust - samkvæmt því sem hún sagði sjálf í sjónvarpsviðtali - af hverju er hún ekki leidd fyrir landsdóm og ef það er fyrnt fyrir landsdómi þá fyrir ríkissaksóknara.
Hvað fleira skrifaði Valgerður Sverrisdóttir undir fyrir hönd þjóðarinnar án þess að vita hvað hún var að gera?
Svo er alver ástæðulaust að skilja Jóhönnu Sigurðardóttur útundan - ferilsskrá hennar úr ríkisstjórn Geirs og Ingibjargar Sólrúnar bendir á þörf á því að landsdómur skoðaði hana - Jóhanna var í ráðherra nefnd sem átti að hafa yfirumsjón með ríkisfjármálunum og einnig var hún félagsmálaráðherra með ábyrgð á Íbúðalánasjóði - Af hverju þótti Samfylkingarfólkinu ekki ástæða til að vísa Jóhönnu í skoðun hjá landsdómi ?
Eða Þórunn Sveinbjarnardóttir fyrrum umhverfisráðherra - voru embættisfærslur hennar margar í líkingu við - ísbjarnarmálið - væri ekki ástæða til að skoða það nánar ?
![]() |
Alvarleg vanræksla á starfsskyldum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þolmörk þjóðarinnar: Væntingar þær sem hafðar voru til þingmannanefndarinnar voru miklar - Að þingmannanefndin - hún yrði fulltrúi og talsmaður réttarríkisins.
Það þarf ekki lögspekinga til að gera greinarmun á réttu og röngu - fólk virðist almennt vera vonsvikið eftir að fréttir fóru að berast út um vinnubrögð - þingmannanefndarinnar -
Stóra spurningin: Verður það þingmannanefndin sem gerir útslagið á þolmörk þjóðarinnar?
![]() |
Ekki samstaða í nefndinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.9.2010 | 21:26
Öll ríkisstjórn Geirs og Ingibjargar Sólrúnar ber ábyrgð - enginn getur verið hvítþveginn.
![]() |
Skýrslan prentuð í nótt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ljósi punkturinn er að minnihlutinn stendur bjargfastur sína vakt.
Minnihlutinn undir stjórn Hönnu Birnu gera það sem þau geta til að vit sé í málunum - Meirihlutinn veit ekkert í sinn haus og virðist heldur ekkert hafa áhuga á því að setja sig inn í borgarmálin.
Borgarstjórinn Jón Gnarr og Dagur B. Eggertsson gengu báðir af fundi fyrirvaralaust - þegar Hanna Birna var rétt byrjuð að flytja stefnuræðu sína.
Borgarstjórastóllinn var látinn standa tómur nokkuð sem aldrei á að vera og aldrei hefur átt sér stað áður - sem kom fram í athugarsemd Hönnu Birnu við því að enginn staðgengill væri fyrir borgarstjórann - sem bara hafði farið af fundinum rétt si svona.
Málefni sem lágu fyrir fundinum : Aðgerðaráætlun hana var ekkert hægt að ræða á fundinum því Dagur og Jón voru ekki viðstaddir og þeir eru formaður og vara formaður í þeim vinnu hópi.
Fjárhagsáætlun var líka fundarefni : Enginn viðstaddra á fundinum vissi hvort meirihlutinn væri nokkuð byrjað á að ræða fjárhagsáætlun fyrir næsta ár hvað þá meir.
Forgangsröðun : Frestað til næsta fundar.
Þeir sem voru viðstaddir frá meirihlutanum vissu ekkert um það sem þeir voru spurðir að.
Sjálfstæðisflokkurinn og Vg. bókuðu vegna óstarfhæfs fundar en engin mál voru afgreidd.
Fólk á að nýta sér að hlusta á beinar útsetningar frá fundum borgarstjórnar á þriðjudögum - og borgarráðs fundum á fimmtudögum - þar kemur augljóslega fram hvernig ástandið er - Það er slæmt - miða við þennan fund sem ég er að segja ykkur frá.
Ljósi punkturinn er að minnihlutinn er mjög ábyrgur og stendur bjargfastur sína vakt.
![]() |
Ætlar aldrei aftur til Brussel |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |