Færsluflokkur: Dægurmál

Borgarstjórinn "sogrmæddur" ? : Minna á vælubókinni - vinna meira - borgarstjóri! Loka bara væluskjóðu-bókinni - þá verður borgarstjórinn glaður.

Hlusta svo á upptökur frá borgarstjórnarfundum á kvöldin - þá lærir borgarstjórinn hvernig ber að haga sér. - Þá verður borgarstjórinn glaður........................Allskonar fyrir borgarstjórann af gleði ráðgjöf - kostar ekkert - bara 70% af launum borgarstjóra.
mbl.is Sorgmæddur eftir borgarstjórnarfund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvenær hafa orð Jóhönnu reynst marktæk? - En nú er brunalykt í nösum Jóhönnu - ófriðarbálið brennur í Samfylkingunni.

Hótanir Jóhönnu um allt illt og jafnvel heimsendi - hafa ekki gengið eftir - en hún sjálf gengur nú á glóðum. - Nema hvað - er við öðru að búast .
mbl.is Gagnrýnir málsmeðferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er borgarstjórinn í Reykjavík Jón Gnarr Kristinsson byrjaður á fjárhagsáætlun fyrir næsta ár ? - Minna á fésinu - meira í borgarmálunum.

Hvernig væri að borgarstjórinn segði borgarbúum frá því hvernig fjárhagsáætlunin fyrir næsta ár gengur - hvernig henni miðar áfram - og hvar í fjárhagsáætluninni hann er staddur - Það viljum við í borginni heyra um frá borgarstjóranum. Það er verk borgarstjóranns að sjá um. Minna á fésinu meira í borgarmálunum - vinna fyrst leika sér svo.
mbl.is Jón Gnarr: Héraðsdómur flytji sig annað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Trúnaðarmála mappa í trúnaðarmála herbergi:Trúnaðarmála tuggan gengin í endurnýjun lífdaga á Alþingi.Nú í umdæmi Atla Gíslasonar formanns þingmannanefndarinnar.

Ef þingmenn eiga að geta unnið vinnuna sína í þinginu þá er ekki hægt að halda frá þeim mikilvægum gögnum sem varða málin - það hlýtur öllum að vera ljóst. - En hvað með almenning hverju er verið að halda leyndu fyrir honum - Almenningur vill vita og á að " fá að vita"

Flestum hlýtur að vera í fersku minni þegar Steingrímur - Össur stungu undir stól lögfræði álitum og mikilvægum upplýsingum þegar Æsseif málið var til umræðu á Alþingi - þá varð til "trúnaðarmála mappa í trúnaðarmála herbergi" fyrir þingmenn - en til að það fengist í gegn að þingmenn fengju að berja augum þessi mikilvægu "TRÚNAÐAR" málsgögn þá varð ámáta uppþot í Þinginu og nú stendur yfir. Þá vantaði ekki að Birgitta Jónsdóttir færi mikinn í þinginu og krefðist allra upplýsinga -  eðlilega.En hvað hefur breyst hjá Birgittu Jónsdóttur - nú er hún fylgjandi leyndarhyggjunni í Atlanefndinni.


mbl.is Þingmenn segja vanda vegna landsdóms slegið á frest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Störf Alþingis í uppnámi: Það þarf að fresta þingfundi í þrjá daga verna uppnáms í þingmannaliðinu. Hver er virðing Alþingis?

Er slíku fólki treystandi fyrir vegferð heillar þjóðar? Er ekki þörf á hæfniskröfum fyrir þá sem bjóða sig fram til starfa á Alþingi Íslendinga ?

Þeir sem ekki eru hæfir til að setja sjálfan sig til hliðar og flokkinn sinn og vinna þau störf sem þingseta krefst af þeim - faglega - með heiðarleika - réttlæti og sannsögli - eru ekki hæfir til þingsetu.

 


mbl.is Umræðu frestað til mánudags
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Landsdómur: "Þið eruð ekki þjóðin" - sagði Ingibjörg Sólrún við þéttskipaðan salinn í Háskólabíó - á fyrstu dögum hrunsins 2008 - og uppskar hún - PÚuuuuÚ - frá salnum!

Á þessum sama tíma og Ingibjörg Sólrún afneitaði þjóð sinni í Háskólabíó - þá þáði hún laun sín frá þessu sama fólki - sem hún afneitaði. - En fyrir hverja var var Ingibjörg Sólrún að vinna ? - óvitlaust að hugleiða það - hvað var í forgrunni hjá Ingibjörgu Sólrúnu ? - Ekki þjóðin sem hún afneitaði.

 


mbl.is Aðeins helmingur mætti til fundarins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Landsdómur : Færasta leiðin að þingið sameinist um að öllun ráðherrum ríkisstjórnarinnar 2007 - 2009 verði stefnt fyrir Landsdóms.

Það er færasta leiðin eins og málum er háttað í dag og jafnframt sú réttlátasta - Allir fyrir einn - Einn fyrir alla. - Allir máttu vita og allir vissu.
mbl.is Yrðu yfirheyrðir og gætu kallað til vitni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fátækt á Íslandi: Það er lögboðin skylda ríkis og sveitarfélaga að sjá til þess að - allir - hafi fæði - klæði og húsaskjól!

Stendur ríkið og bæjarfélög undir þessari lögboðnu skyldu - NEI - En á því verður að verða breyting.

Fólk byrjar að standa í biðröðum utan dyra fimm klukkutímum áður en úthlutun á matargjöfum hefst hjá Fjölskylduhjálpinni í Reykjavík - sem eru sjálfboða samtök.

Hvernig ætlar ríki og bæjarfélög að sinna lögboðnum skyldum sínum gagnvart fátækum - þú þegar - þjóðfélagið á kröfu á því.


mbl.is Erfiður vetur framundan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Landsdómur : Nú býður Samfylkingin "föllnum" ráðherrum til sellu fundar ! Skandall.

Slíkir sellufundir eru sagðir af Skúla Helgasyni vera "Liður í faglegri umfjöllun Samfylkingarinnar" vegna tilnefningar Þingmannanefndarinnar á þar til bærum ráðherrum fyrir Landsdóm.

Fyrst var bara Ingibjörg Sólrún boðin af Samfylkingunni til slíkrar "faglegrar umfjöllunar" á sellufundi Samfylkingarinnar - að vísu hafði Björgvin G. Sigurðsson einnig verið boðinn til sellufundar - en hann hafði afþakkað boðið.

Líklegt er Samfylkingin hafi fengið tiltal frá einhverjum þar til bærum innan þingsins og ekki slíkur skandall látinn viðgangast innan Alþingis - nema - fundurinn sem átti að vera með Ingibjörgu Sólrúnu í kvöld var frestað - og Geir H. Haarde og Árna Matthisen var boðið líka til sellufundar hjá Samfylkingunni til " faglegrar umfjöllunar".

Ekki hefur enn heyrst nokkuð af undirtektum Geirs og Árna  varðandi sellu fundarboð Samfylkingarinnar.

Ekki er beint líklegt að þeir þekkist slíkt sellu-fundarboð frá Samfylkingunni.


mbl.is Samfylkingin frestar þingflokksfundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Landsdómur:Hvað með Jóhönnu og Össur - þau sátu bæði í hrunstjórninni 2007 - 2009 .

Eru þau ekki með ferils skráðar heimildir að úttekt fyrir Landsdómi ?

Samkvæmt ferilsskrá þeirra tveggja komu þau bæði að ríkisfjármálunum innan hrunstjórnarinnar 2007 - 2009 - hvernig leystu þau það af hendi?


mbl.is Óvíst hvort málið fer í nefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband