29.12.2009 | 01:30
Vel gert hjá Pétri H. Blöndal þingmanni Sjálfstæðisflokksins - hann hefur lagt fram breytingartillögu við Icesave- frumvarpið.
Breytingartillagan gerir ráð fyrir því að bera skuli heimild fjármálaráðherra til að veita ríkisábyrgð vegna Æsseif - undir þjóðaratkvæðagreiðslu.
Þessa tillögu hlýtur þingið að samþykkja - það væri ekki vitglóra í öðru. Þá er það þjóðin sem tekur ábyrgðina - og léttir þeim drápsklyfjum af Steingrími og Jóhönnu þau ættu að verða ánægð - eða hvað ?
Nú er að fylgjast með því hvaða þingmenn kjósa hvernig - vonandi verður farið fram á nafnakall !
Tillaga um þjóðaratkvæðagreiðslu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Húrra fyrir Pétri! Verð að viðurkenna að fyrir "svokallað" hrun þá fannst mér maðurinn ætíð svo ósamkvæmur sjálfum sér í orðum og gerðum. Er samt farin að endurskoða manninn fyrir einhverjum vikum síðan og þessi tillaga hans færir honum ekkert annað en (h)rós í hnappagatið frá mér. Svei mér þá, annað hvort er ég eða Pétur að þroskast þessa dagana!
assa (IP-tala skráð) 29.12.2009 kl. 02:04
Hann fær prik! Ég held að það villi um fyrir fólki að hann er oft óðamála og kannski hleypur svolítið úr einu í annað. Viðurkenni eins og assa að hann leynir á sér.
Sigurbjörg Eiríksdóttir, 29.12.2009 kl. 07:50
Sælar stelpur - JÁ Pétur er nauðsynlegur á þingi - hann sér það sem aðrir ekki sjá - það var hann sem sá skattaafsláttinn fyrir kúlulánshafana sem stungið var inn á milli í heimilis-björgunar lagafrumvarp félagsmálaráðherra og átti að afgreiðast með hraði og sama og engri umfjöllun í þinginu. Pétur sá það og fékk það tekið út á seinustu mínútum fyrir afgreiðslu. Pétur má ekki vanta í þingið.
Benedikta E, 29.12.2009 kl. 13:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.