Færsluflokkur: Dægurmál

Af hverju - NEI - við Icesave III ?

1 )  Icesave er líklega sakamál sem ekki ennþá hefur verið rannsakað til fulls.

2 )  Íslenska þjóðin skuldar ekki löglausar fjárkröfur Breta og Hollendinga.

3 )  Íslenska þjóðin á ekki að greiða óreiðuskuldir áhættusækinna fjárglæframanna einkabanka.

4 )  Ólöglegt er með öllu að skuldsetja íslensku þjóðina með jafnvel hundruðum milljarða fjárskuldbindingu - óskilgreindri fjárupphæð með opnu skuldabréfi / víxli.

5 )  Ofur skuldsetning ríkissjóðs er ólögleg aðför að þjóðinni og brot gegn Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands samkvæmt 40.gr. 41.gr. og 77.gr.

6 )  Að skuldsetja íslensku þjóðina með slíkum hætti myndi að öllum líkindum leiða til þjóðargjaldþrots - með eignamissi - fátækt og vesöld til langrar framtíðar.

7 ) Komandi kynslóðir - börn - barnabörn og barnabarnabörn yrðu hneppt í skulda og fátæktarfjötra til framtíðar.

8 )  Ríkisábyrgð með óútfylltu skuldabréfi /víxli - gæfi Bretum og Hollendingum heimild til að ganga að eigum þjóðarinnar - auðlindum - fyrirtækjum - landareignum og öðru sem þá fýsti að taka yfir.

9 )  Ísland væri ekki lengur frjálst og fullvalda ríki - heldur nýlenda Breta og Hollendinga.

10) Þess vegna segir frjáls og fullvalda þjóð  - NEI - við löglausri Icesave fjárkúgun Breta og Hollendinga.

Sameinuð stöndum vér! - Fellum Icesave-lögin   NEI - við Icesave III !

Íslandi allt !  

 

 


Icesave III - Ómarktæk skoðanakönnun MMR - aðeins er tekið úrtak úr ákveðnum aldurshóp kjósenda18 - 67 ára!

Hvað eru 68 ára og eldri fjölmennur kjósendahópur ? Að reikna ekki með þessum hluta kjósenda gerir könnunina kol-ranga - Þetta fólk kýs í kosningunum - það mætir sko á kjörstað -

 Þessi aldurshópur 68 ára og eldri er hvorki útrásar víkingar eða kúlulána þegar - svo augljóst er hvorumegin hryggjar í kosningunum atkvæðin þeirra verða. Bara brosa og berjast Whistling  NEI - NEI og aftur - NEI við Icesave III

Íslandi allt !


mbl.is Mjótt á mununum um Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á meðan fólk dregur fram lífið undir hungur mörkum - Er brask elítan enn að - Bankastjórar Arion banka fengu 45.9 milljónir í laun árið 2010 !

Á meðan stöðugt fjölgar í hungurbiðröðunum - Hvenær verður fólki virkilega - nóg boðið ???
mbl.is Laun bankastjóra Arion banka 46 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er hættu spil fyrir Steingrím Joð að ganga út frá því að fólkið séu tómir aular ! -

Hverjir eru - aularnir ??? - er það 30 + 30 ára gamla gengið á Alþingi sem hætt er að fylgjast með?
mbl.is Notuðu ársgamalt gengi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

RÚV skammist ykkar!!! - Silfur Egils - Lágkúran þar virðist ekki eiga sér nokkur takmörk - en toppar sig með hverjum þætti!

Þátturinn í dag var ekki boðlegur - og að þetta skuli vera á reikning skattgreiðenda. RÚV.skammist ykkar!!!


mbl.is Forsetinn er týndi sonurinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fólkið vonar og þráir að Jóhanna láti verða af hótunum sínum - og segi af sér!

Bara drífa sig á Bessastaði Jóhanna - Eða senda Hrannar með bréfið til forseta! Bara drífa sig !
mbl.is Hótaði ekki forsetanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn ein pantaða yfirlýsingin frá Jóhönnu "ó"stjórninni - nú frá sjálfum Lee Buchheit.

Hvað kostar ein svona yfirlýsing og hver borgar? Öllum lögmálum er snúið á haus eftir Jóhönnu-uppskriftinni - því meiri skuldsetning - "hækkar lánshæfiseinkunn íslenska ríkisins verði Icesave-lögin samþykkt" og íslenska þjóðin sett á vonarvöl. - Skammist ykkar svo.
mbl.is Ánægður með að Icesave-lög voru samþykkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

kjósum.is - gegn ólöglegum Icesave III

Valdið er hjá þjóðinni www.kjosum.is
mbl.is Samingurinn betri en sá fyrri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Herra sérstakur - Hvað svo með þessa tvo - fyrrum bankastjóra Landsbankans þá Halldór Kristjánsson og Sigrjón Árnason?

Annar þeirra er laus úr farbanni og hinn laus úr tukthúsinu - Hvað svo með þessa tvo ? - Herra sérstakur..........
mbl.is Halldór laus úr farbanni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ólafur Ragnar Grímsson er sá besti forseti sem þjóðin hefur haft - Hann er eini forseti Ísland - sem unnið hefur fyrir þjóðarhag.

Við gætum ekki haft betri forseta en Ólaf Ragnar Grímsson nú á þessum erfiðu tímum þjóðarinnar með ríkisstjórn sem vinnur einbeitt gegn lýðræði og þjóðarhag.

Þetta er hreint kjaftæði að vera að reyna að fá umræðu um nýja forseta frambjóðendur - Herra Ólafur Ragnar Grímsson gefur kost á sér til forseta næsta kjörtímabil  og þá verður ekkert forsetakjör - hann verður sjálfkjörinn.

Það eiga ekki að vera einhverjar "puntudúkkur" í forsetaembættinu eins og fyrirrennarar Ólafs Ragnars Grímssonar voru - gjörsamlega gagnslausir fyrir þjóðina.

 


mbl.is Flestir vildu Rögnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband