Færsluflokkur: Dægurmál

" Ekki boðlegt í sölum Alþingis" Hver er það sem þykist hafa efni á að vera með slíka sleggjudóma yfir málflutningi þingmanna?

JÚ - engin önnur en Jóhanna - sem öðrum fremur gengur fram í því að rýra orðstír Alþingis - með "yfirgangi - kúgun og valdníðslu"
mbl.is Ekki boðlegt í sölum Alþingis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fólk í fátæktarfjötrum einskorðast ekki bara við öryrkja! - Ört vaxandi hópur millistéttarinnar hrynur út af hamrinum niður í hyldýpi fátæktarfjötra og hafa " hvorki efni á mat né bensíni " frekar en öryrkjar.

Það má segja að þverskurður þjóðfélagsins heyri orðið undir þann hóp fólks sem er í fátæktarfjötrum:

Öryrkjar - aldraðir - atvinnulausir - námsmenn - bótaþegar - millistéttin - í öllum þessum hópum er fólk sem var vel bjargálna fyrir hrun - en hefur nú hvorki fæði - klæði né húsaskjól.

Stjórnvöld brjóta blygðunarlaust á þessu fólki - með því að framfylgja ekki Stjórnarskrár vörðum landslögum samanber 76.gr. Stjórnarskrárinnar  En þess í stað er nauðstöddum vísað á hungurbiðraðir hjálparstofnana - Stjórnvöld brjóta lög á borgurunum og eiga að stór skammast sín og kippa þessum málum í viðunandi horf fyrir nauðstadda - samkvæmt landslögum.

 Hvað þarf til að stjórnvöld fari að starfa samkvæmt landslögum og þjóðarhag?


mbl.is Hvorki efni á mat né bensíni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég saknaði þess í ræðu biskups Íslands á sjálfan páskadaginn - að hann skyldi ekki hafa orð á náunga kærleikanum í verki.

Samkvæmt Orðinu á náungakærleikurinn allsstaðar að rúmast í öllum mannlegum samskiptum - Hvað skyldi fólk í fátæktarfjötrum hafa á sínum matardiski um páskana ? - Hjá einhverjum er kannski matardiskurinn tómur. - Orð - eru ekki í askana látin.
mbl.is Verðum að læra að treysta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NEI - NEI - kæra Ólöf - Hvaða - Hvaða málfluttningur er nú þetta hjá þér ?

Ekki ertu búin að gleyma því að þú sagðir - JÁ - með Jóhönnu óstjórninni í þinginu - þú ert nú varla búin að gleyma því hvað þú gladdir Jóhönnu og Steingrím mikið með - JÁ-inu þínu - Þér er nú varla farið að finnast að þú hafir sagt - NEI - eins og farið er að bera á hjá sumu Samfylkingar fólkinu?
mbl.is Ákvörðun Moody's ekki óvænt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er líkt með Já-sinnum fyrir Icesave 3 og þeim sem kusu Besta flokkinn ?

JÚ - þeir vinna að því að eyða úr minninu - sínu eigin og annarra hvernig þeir kusu - láta jafnvel eins og kosningarnar hafi aldrei átt sér stað. Staðreyndaflótti á - HÆSTA - stigi !
mbl.is Varnarsigur fyrir Ísland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forseti vor hefur talað máli þjóðar sinnar með alvöru orðum til Moody's!

Moody's veit upp á sig skömmina og þorir ekki annað en halda sig á mottunni - Það ættu Já-ararnir að hafa vit á að gera einnig - Skömm þeirra og smán er mikil !
mbl.is Óbreytt mat hjá Moody's
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er fleiri tíðinda að vænta úr Borgarstjórn Reykjavíkur ?

Ekki ósennilegt - Það er hættu ástand í Reykjavíkurborg undir óstjórn núverandi meirihluta Bestaflokksins og Samfylkingar.
mbl.is Hættir sem forseti borgarstjórnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Inneignarkort í stað matarpakka: Hjálparstarf kirkjunnar stígur hér fram og býður nauðstöddum greiðslukort í stað matarpakka.

Þetta er mjög virðingarvert framtak sem gert er af virðingu við skjólstæðinga og skilningi á þeirra  sáru neyð - Hjálparstarf kirkjunnar sinnir samkvæmt sínum reglum neyðar aðstoð og þá skammtíma verkefnum -

Ástandið hér á Íslandi er orðið viðvarandi neyðarástand frá því um og eftir hrun - á þriðja ár og fer sífellt versnandi -

 Þetta veit fólkið hjá Hjálparstarfi kirkjunnar og þess vegna er gripið til fyrrgreindra ráðstafana hjá þeim -

En hvað gera stjórnvöld: Það er í landslögum og stjórnarskrár varið samkvæmt 76.gr. Stjórnarskrár - Öllum sem þess þurfa, skal tryggður í lögum réttur til aðstoðar vegna sjúkleika,örorku, elli,atvinnuleysis,örbirgðar og sambærilegra atvika.

Hvernig framfylgir velferðarráðherra 76.gr stjórnarskrárinnar og landslögum ? - Með nýrri skilgreiningu á fátækt og örbirgð landsmanna með stjórnsýslu orðfarinu - Þriðji geirinn - í staðin fyrir örbirgð og fátæktarfjötrar. 

Fólki sem leitar til velferðar sviðs Reykjavíkurborgar er oftar en ekki bent á að leita sér hjálpar í hungurbiðröðum hjálparstofnana - Stjórnvöld eiga að skammast sín fyrir að brjóta á borgurunum eins og gert er bæði á ríkisstjórnar stigi og hjá sveitarfélögum.


mbl.is Inneignarkort í stað matarpakka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er það útrásar "gervi elítan" sem svífur yfir tónlistarhúsinu á hafnarbakkanum

enda minnisvarði um útrás og græðgi Björgólfana - verða þeir meðal heiðurs gesta tónlistahúsins á kostnað skattborgara - Skammist ykkar!
mbl.is Vísað úr Hörpu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Utanþingsstjórn - STRAX - Skipuð til ákveðins tíma og til ákveðinna verkefna: Icesave - heimilin - bankarnir (hreingerning) - atvinnuuppbygging - stjórnkerfið (hreingerning) velferðarkerfið ofl.?

Kosningar til Alþingis tímasetning samkvæmt stjórnarskrá.
mbl.is Þjóðstjórn um afmörkuð verkefni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband