Færsluflokkur: Bloggar

Virðulegur fundur - forseta Íslands og fulltrúa Indefence samtakanna á Bessastöð !

Fundurinn stóð í eina og hálfa klukkustund 8 fulltrúar sátu fundinn með forsetanum.

Einnig var samstöðufundur utandyra og álitið - að þar hafi verið í kringum 2000 þúsund manns.

Lögreglan var ekki á staðnum - en allt fór fallega of friðsamlega fram.

Fréttamenn og ljósmyndarar voru á staðnum - útvarpað var beint frá fundinum utandyra - á Útvarpi Sögu .

Ennþá er hægt að skrá sig á www.indefence.is  áskorun til forseta Íslands.


mbl.is Fundi lokið á Bessastöðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

21 árs svanur - Ferðalangurinn - nýlega skráður í Englandi eftir sumardvöl á Íslandi !

Ferðalangurinn eins og svanurinn er kallaður er talinn hafa flogið 64 þúsund kólómetra á sinni lífsleið.  Þessi svanur er táknrænn fyrir íslensku þjóðina - sem aldrei gefst upp og lætur ekki kúga sig!

 


mbl.is Ferðalangurinn snýr aftur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stendur breskum ógn af íslensku þjóðinni ?- eitthvað er það - sem þeir óttast !

Hafa þeir áttað sig á að íslenska þjóðin er ekki af gólfmottu gerðinni - og því annarrar gerðar en ríkisstjórnar-parið !

Íslandi allt ! - NEI - við Æsseif-fjárkúgun breta og hollendinga !


mbl.is Fylgst með ákvörðun forsetans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

www.indefence.is - 54 þúsund - hafa skráð sig - áskorun til forseta Íslands !

Bætum í - 60 þúsund er betra !
mbl.is Vilji þjóðarinnar hornsteinninn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þingmen stjórnarandstöðunnar berjast baráttunni trúu og sönnu fyrir þjóð sína - og kvika hvergi !

Límið í ríkisstjórn Jóhönnu og Steingríms - er lygin og leyndinn. Burt með hana - STRAX - !
mbl.is Þingfundi nú frestað til 15
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rödd Hreyfingarinnar er nauðsynleg í þinginu ! - Bara vanda sig - annars les Hreyfingin ykkur textann fyrir alþjóð!

Að 41 séu á móti 3 frá Hreyfingunni  - segir ekki að rödd Hreyfingarinnar sé ekki þörf á Alþingi Íslendinga - Hreyfingin veitir þessum 41 aðhald - þeir vanda sig bara betur - þeirra óaðfinnanlegu vinnubrögð verða þá bara ennþá betri !

Vandlæting og hroki sumra þingmannanna gegn Hreyfingar þingmönnunum í þessu máli tala nú meira gegn þeim sjálfum en Hreyfingunni.

Bara vanda sig - annars les Hreyfingin ykkur textann fyrir alþjóð.


mbl.is Sérstök þingnefnd verður kosin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vel gert hjá Pétri H. Blöndal þingmanni Sjálfstæðisflokksins - hann hefur lagt fram breytingartillögu við Icesave- frumvarpið.

Breytingartillagan gerir ráð fyrir því að bera skuli heimild fjármálaráðherra til að veita ríkisábyrgð vegna Æsseif - undir þjóðaratkvæðagreiðslu.

Þessa tillögu hlýtur þingið að samþykkja - það væri ekki vitglóra í öðru. Þá er það þjóðin sem tekur ábyrgðina - og léttir þeim drápsklyfjum af Steingrími og Jóhönnu þau ættu að verða ánægð - eða hvað ?

Nú er að fylgjast með því hvaða þingmenn kjósa hvernig - vonandi verður farið fram á nafnakall !

 


mbl.is Tillaga um þjóðaratkvæðagreiðslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er nú til ráða - með Æsseif - góðir landsmenn ?

Er meirihluti  fyrir landráði á þingi ?
mbl.is Icesave tekið út úr nefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Edda Heiðrún Bachman leikkona er vel að listamannalaunum komin - hún hefur sýnt það og sannað á sínum listamannsferli - meðal annars með listrænni fjölhæfni sinni!

En að listamannalaunin skulu vara til eilífðar fyrir þá sem einu sinni komast á þann lista er með öllu glórulaust.

Auðvitað á að meta það frá ári til árs hverjir fá listamannalaun.

Að Þráinn Bertelsson skuli hafa komist inn á listamannalauna listann  yfir höfuð hef ég aldrei skilið - og síst af öllu til að vara þar um aldur og æfi - er það ekki bara algjört grín?


mbl.is Edda Heiðrún fær listamannalaun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lögreglan stendur sig vel ! - Það þarf að útrýma stútum undir stýri !

Orðsending til stjórnvalda - Lögreglan þarf bætt starfsskilyrði og laun í samræmi við ábyrgð og áhættu starfsins - Sýnið lögreglunni tilhlýðilega virðingu - stjórnvöld !

Löggæslan er ein af grunnstoðum lýðræðisþjóðfélags.


mbl.is Fimmtungur án skírteinis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband