Hafið þið - HEYRT- norska lánið er tilbúið fyrir Íslendinga - NÚNA - og hefur verið það frá 28. október! Þetta sagði utanríkisráðherra Noregs Jonas Gahr Störe í norska Stórþinginu í gær!

Fjallað var um málefni Íslands og lánveitingar - í norska þinginu í gær að beiðni þingmanns Framfaraflokksins Peter N. Myhre

Mikill stuðningur er við Ísland í norska þinginu og eins meðal Norðmanna almennt.

Kristin Halvordsen og hennar flokkur Vg. voru sterkt gagnrýndir fyrir framgöngu þeirra gegn Íslendingum.

Öll sú aðför að Íslandi sem verið hefur í gangi verður að taka enda og fyrst og síðast er fyrir okkur Íslendinga að stoppa þá lygamaskínu sem hefur verið og er í gangi hjá stjórnvöldum hér - nánar tiltekið þeim Jóhönnu og Steingrími sem er lágkúrunni einni líkast  -  það þarf ekki að vera með tæpitungu á því að þau ganga ekki eftir vegum sannleikans í þessu máli né öðrum - en ganga leynt og ljóst fram í því að blekkja þjóðina - þannig að með ólíkindum er. Það verður að stoppa.

Nánari umfjöllun má sjá á  skulablogg.blog.is


mbl.is Segir norska lánið til reiðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband