Vanhæfur þingmaður Vg. Björn Valur Gíslason - hrokafullur og ótrúverðugur með eindæmum......!

Málefnaleg umræða sem byggir á þekkingu - liggur ekki fyrir  þingmanninum Birni Val - það gætu ræður hans í þinginu fært sönnur á.

Æsseif störf þingmanna í sumar hefur þingmaðurinn tætt í sundur bæði í ræðu og riti og ásakað stjórnarandstöðu þingmenn um fals og illvilja í því starfi - þar sem í reynd allir lögðu sig fram til góðra verka af einlægni.

Athyglisverðast í því samhengi er að Björn Valur kom ekki nálægt þeirri vinnu hann hafði varamann fyrir sig í þinginu en sjálfur var hann úti á sjó.

Er það slík þingmannagerð sem fólk vill hafa á þingi - VARLA - Björn Valur - snúðu þér að störfum sem henta þér betur en þingstörfin.


mbl.is Segir sáttatón stjórnarandstöðunnar falskan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er orðið tímabært að utanríkisráðherra Íslands - sendi formlega kvörtun til utanríkisráðherra breta - vegna grímulausra hótana Alistair Darling fjármálaráðherra Breta - gegn forseta Íslands Ólafi Ragnari Grímssyni - fyrir opnum tjöldum!

Heyrst hefur að  til viðbótar við fjölmiðlaviðtöl A.Darling um Æsseif-málið og forseta Íslands - hefur hann A.D. líka verið að reyna að komast í samband við forseta Íslands og koma til hans skilaboðum um hvað mikið slæmt það gæti haft í för með sér ef hann skrifaði ekki undir Æsseifinn.

Forseti Íslands á að vera virtur svo af þessum breska fjárkúgara að hann fái frið fyrir honum við sín störf hér á Íslandi - fyrir þjóð sína.

Nú er nóg komið - utanríkisþjónusta Íslands verður að taka til varnar fyrir Íslenska lýðveldið og setja þessum breska átvargi mörkin - jafnvel að vísa breska sendiherranum úr landi.

Ísland er ekki orðin nýlenda Breta ennþá - eða hvað ?

Íslandi allt.


Það er enginn að tala um að ríkisstjórrnin fara frá - nema hún sjálf - eða þau Jóhanna og Björn Valur aðallega - og gera það í hótunaskyni! Lélegt - Hvaða - Hvaða.....?

Ef ríkisstjórnin treystir sér ekki til að sitja lengur - þá er enginn sem getur bannað henni að segja af sér - þá bara gerir hún það - það er þá hennar val og aðrir taka við keflinu af henni.

Stjórnarliðar bera sjálfir ábyrgð á því hvort þeir gera hótanir sínar að veruleika.


mbl.is Stjórnin hefur ekki leyfi til að fara frá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forseti Íslands á að njóta friðhelgis - fyrir- ósæmilegri ágengni og kúgunar töktum - erlendra fjárkúgara og stjórnvöldum sinnar eigin þjóðar - í fjölmiðlum innanlands sem utan!

Lágt er lagst og langt er seilst - Darling fjármálaráðherra Breta - Björn Valur Gíslason sendiboði Steingríms Joð - allir eru þeir í sama liði.
mbl.is Icesave-samkomulag mikilvægt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er að frétta af bótagreiðslum til þolenda í Breiðavíkurmálinu? - Verða bótagreiðslur með dráttarvöxtum?

Nefnd rannsakar nú Silungapoll - vistheimilið Reykjahlíð og heimavistarskólann Jaðar.

En hvað er með lyktir Breiðavíkurmálsins ? Það er ekki bara að setja nefnd í málin og biðja svo "afsökunar" það þarf að ljúka málunum líka - Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra "velferðarstjórnarinnar".............


mbl.is Nefnd rannsakar nú Silungapoll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábært framtak - Minnisvarði verður reistur um þá þingmenn sem samþykktu Æsseif-frumvarpið !

Ekki er enn búið að finna honum stað en talað hefur verið um miðbæ Reykjavíkur.

Samskotafjáröflun er hafin og hefur gengið mjög vel - 800 þúsund hafa nú þegar safnast - Frábært ...........!


mbl.is Iceslave safna 800 þúsundum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þvílikur fíflagangur hjá ríkisstjórnarflokkunum - Björn Valur af öllum - gerður út - í fjölmiðla hræðsluáróður!

Björn Valur er látinn reyna að þyrla upp hræðsluáróðri á íslenskum fjölmiðlum og einnig á Bloomberg fréttaveitunni - með þann boðskap að ef forseti Íslands "taki ekki afstöðu í Æsseif málinu áður en markaðir opni í fyrramálið þá - þá sé voðin vís" ? Hvaða - Hvaða..................

Eins og það stjórni púlsi fjármálamarkaða heimsins - hvenær forseti Íslands svarar þjóð sinni um þjóðaratkvæðagreiðslu - um Æsseif málið.

Hefur íslenska ríkisstjórnin ekki gjaldfellt sjálfa sig nóg erlendis -  þó Björn Valur  bæti ekki svona heimskulegum trúðslátum við - sem allir sjá í gegnum - og setur íslensku ríkisstjórnina endanlega í ruslflokkinn -"meðal þjóðanna".....................Af nógu var að taka þó slíku og þvílíku væri ekki bætt við. Skammist ykkar fyrir fíflaganginn. Hver er virðing þingmanna sem haga sér með slíkum hætti ?

 

 


mbl.is Nauðsynlegt að fá niðurstöðu fljótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Marklaust þvaður í frú Ólínu Þorvarðardóttur - nema hún sýni og sanni að tölvupósturinn sem hún tjáir sig um sé sannur !

Öllu er nú tjaldað til ! - Manneskja mín...........
mbl.is Kannast ekki við fjöldapóst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Björn Valur Vg. þingmaður - það er of seint að fara á taugum - NÚNA - 4 þingmenn stjórnarflokksins Vg.skora á forseta Íslands að skrifa ekki undir - Æsseif fjárkúgunina!

Það er ekki fyrst - NÚNA - að það er að renna upp fyrir varaformanni fjárlaganefndar að það var ekki meirihluti í þinginu fyrir Æsseif-fjárkúguninni - fléttu brellur Vg. við atkvæðagreiðsluna áttu að vera nægjanlegar sjónhverfingar til að slá ryki í augu manna en svo er bara ekki.

Ríkisstjórnin hafði ekki meirihluta fyrir málinu - það er öllum ljóst Björn Valur varaformaður fjárlaganefndar - farðu bara af límungunum.

Umfjöllun og afgreiðsla stjórnarflokkanna í þinginu verður og hefur verið vandlega skoðuð - það veit varaformaður fjárlaganefndar mæta vel.

Í þessum skrifuðu orðum hafa 61.688 kosningabærra Íslendinga skrifað undir stuðning og áskorun til forseta Íslands að skrifa ekki undir.


mbl.is 4 stjórnarþingmenn skrifuðu undir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Virðulegur fundur - forseta Íslands og fulltrúa Indefence samtakanna á Bessastöð !

Fundurinn stóð í eina og hálfa klukkustund 8 fulltrúar sátu fundinn með forsetanum.

Einnig var samstöðufundur utandyra og álitið - að þar hafi verið í kringum 2000 þúsund manns.

Lögreglan var ekki á staðnum - en allt fór fallega of friðsamlega fram.

Fréttamenn og ljósmyndarar voru á staðnum - útvarpað var beint frá fundinum utandyra - á Útvarpi Sögu .

Ennþá er hægt að skrá sig á www.indefence.is  áskorun til forseta Íslands.


mbl.is Fundi lokið á Bessastöðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband