Orðsending til - RÚV - NÚ eru til umfjöllunar á Alþingi tvö stór mál sem varða lífskjör og líf íslensku þjóðarinnar - Icesave málið og fjárlögin - þar með meiru skattahækkanir ríkisstjórnarinnar!

Er því skorað á RÚV - fjölmiðil allra landsmanna - þar sem allir landsmenn 16 ára og eldri greiða til RÚV - nefskatt upp á 17.500 krónur - Er því skorað á - RÚV - að sýna eigendum sínum og nefskattgreiðendum þann sóma að hafa beinar útsendingar frá Alþingi - þegar þessi tvö stóru og mikilvægu mál eru til umfjöllunar í þinginu.

RÚV breyti þeirri forgangsröðun að láta útsendingu frá Alþingi þar sem þessi stóru mál eru til umræðu ekki víkja fyrir - eldgömlum sápuóperum sem endursýndar hafa verið óteljandi sinnum.

Fjárhagur RÚV þarf ekki að koma í veg fyrir framangreindar útsendingar - því af nógu er að taka til niðurskurðar - má þar nefna - bílaflota og lækkun launa sem eru yfir 500 þúsund krónum á mánuði.


mbl.is 271 milljónar halli á RÚV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband