Færsluflokkur: Matur og drykkur

17 ára gamalt hvalkjöt á borðum "hágæða"matsölustaðar !

Við Þessa makalausu frétt af 17 ára gamla hvalkjötinu - rifjaðist upp fyrir mér "Spaugstofu" þáttur sem ég sá í sænska sjónvarpinu fyrir nokkrum árum ....................!

Tveir vinir fóru út að borða á hágæða -  dýran veitingastað - þeir pöntuðu sér alt það flottasta og dýrasta sem í boði var á matseðlinum - mat og vín....................

Þegar kom að aðal-réttinum - kjötrétti þá upphófust erfiðleikar hjá vinunum -  við að skera kjötið..... Vinirnir þurftu að kalla til þjóninn  -  því hnífarnir bitu ekki á kjötið - þó hnífur þrjú væri af míni  sveðju gerð - þá beit hann ekki á " kjötið " sem vinirnir tveir höfðu pantað -                                          Þegar þar var komið í atburðarrásinni - þá tók annar vinurinn í hornið á þessu stykki sem borið hafði verið fyrir hann -  fagurlega skreytt  með grænmeti og öðru girnilegu - og á viðhafnar borðbúnaði -

En þá kom nokkuð í ljós - kjötið dýra reyndist vera samanbrotin gólftuska.............! 

Þema þessa "spaugstotu" þáttar - var hvað setur þú ofan í þig á fínum og dýrum matsölustöðum ?


mbl.is Hvalkjötið dugði Úlfari í sautján ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband