Færsluflokkur: Fjármál

Þessu bjóst Jóhanna ekki við - eða Gylfi Magg - Katrín og Steingrímur ! HJÁLP ! - NÚ - spretta fram trúnaðarmálin - ALLT - er trúnó !

orkuaudlindir.is - í þessum skrifuðu orðum - höfðu 10.246 skráð sig á undirskriftasöfnun gegn Magma Energy gjörningnum - á orkuaudlindir.is - fyrir þjóðarhag.
mbl.is Vilja upplýsingar um samskipti ráðuneyta við Magma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Yfirmáta fíflaleg aðgerð - sænskir femínistar kveiktu í 100 þúsund sænskum krónum - til að mótmæka launamisrétti kynjanna.

Gátu þær ekki funduð upp á einhverju - gáfulegra. -

Sænskum femínistum er greinilega ekki trúandi fyrir fjárreiðum - það vantar það element í þær.

 


mbl.is Femínistar brenna peninga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Músarholur Steingríms Joð - Hann lætur ekki deigan síga í leit að nýjum músarholum í skattlagningar skyni - Hann Steingrímur!

Nú er það samsköttun hjóna sem er sterklegur vonarpeningur og svo eignaskatturinn sem hann horfir dreymandi til.

Stenst samsköttun hjóna nokkra skoðun:Hjón eru tveir einstaklingar þó þeir gangi fram sameiginlega til þess stöðugleika ákvarðana að ganga í hjónaband - þá halda þau hvor sinni kennitölu.

Samsköttunin myndi láta margt slæmt af sér leiða sem skoða ber alvarlega áður en út í slíkt er farið. Fólk tekur til varnar gegn slíkri aðför - til dæmis með skilnuðum.........!

Eignaskatturinn: Fólk hefur lagt mikið á sig með dugnaði - eljusemi og mikilli vinnu að eignast eitthvað - til dæmis bara þak yfir höfuðið - Fyrir flesta er það ekki fyrirhafnarlaust að eiga þak yfir höfuðið og greiðir fyrir það skatta margskonar.

Svo þegar eitthvað af þrældómnum hefur skilað sér í eign - þá á jú mikið rétt að greiða eignaskatt af því að hafa jafnvel þrælað sér til óbóta fyrir þaki yfir höfuðið..........!

Einhverstaðar verður mörkin að draga í skattheimtu siðleysinu Steingrímur.

Líttu nú á reynslu annarra þjóða Steingrímur - með skattlagningu út úr kreppu - það hefur hvergi reynst vera fær leið - þar sem sú leið hefur verið reynd. 

 

 


mbl.is Skattatillögur kynntar á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki vanþöf á því Guðlaugur Þór Þórðarson að líta á heilbrigðismálin! - sérstaklega með til komu ný byrjaðs heilbrigðisráðherra Álfheiðar Ingadóttur sem ekki segist vera verk-kvíðin!

"Flatur niðurskurður á Landspítala hættulegur" segir á forsíðu Morgunblaðsins.

Vitnað er þar til álits Huldu Gunnlaugsdóttur að hún telji að 450 - 500 manna uppsagnir á Landspítalanum skerði öryggisnetið............!

Svo segir ný skipaður heilbrigðisráðherra Álfheiður Ingadóttir að hún sé ekki  - "verkkvíðin" - og þykist góð með það ! - Segir það ekki mest um dómgreindarleysi ráðherrans fyrir verkefninu - enda ófaglærð - fyrir fagráðuneyti heilbrigðismála.............!

Eins gott að ráðherra heilbrigðismála sé veitt eftirlit og aðhald með allt uppi á borðum.

Vel að verki staðið hjá þér - Guðlaugur Þór Þórðarson.


mbl.is Óskar eftir fundi í heilbrigðisnefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ráða stjórnvöld fréttaflutningi fréttamiðla ? Greiðsluverkfall sem hefst 1. október var fundarefni á borgarafundi í Iðnó í gærkvöldi.

Fréttamiðlar gáfu þessum atburði lítið vægi í fréttamiðlun sinni - og ekki var sýnt beint frá fundinum sem var vel sóttur - fult út úr dyrum...............!

Augljóst er að vanhæf ríkisstjórnin óttast greiðsluverkfallið en gerir þó ekkert til að afstýra því - með lánaleiðréttingu fyrir heimilin............!

Vanhæf "ríkisstjórn" uppsker eins og hún sáir til...............!


mbl.is Óraunsæi að hundsa verkfall
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

www.kjosa.is Enn er hægt að skrá sig á www.kjósa.is - Þjóðaratkvæðagreiðsla !

Sáttargjörð - forseta og þjóðar !

Nú hafa - ríkisstjórnar-flokkarnir steyptu þjóðinni í skuldaánauð til framtíðar! - En málið er ekki búið!

Skráið ykkur á - www.kjosa.is - Áskorun til forseta Íslands Ólaf Ragnar Grímsson að skrifa ekki undir lögin sem heimila ríkisábyrgðina - Áríðandi að ganga í undirskriftir strax - það er líklegt að sett verði flýtimeðferð á lokaafgreiðsluna www.kjosa.is
mbl.is Icesave-frumvarp samþykkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hávaða mótmæli gegn Æsseif á Austurvelli á morgun 27. ágúst kl. 12 á hádegi !

Mætum hávaða-söm og mann-mörg á Austurvöll ...........!

Mótmælum fyrirhugaðri fátæktar-ánauð ríkisstjórnarinnar á þjóðina !

Fyrirvararnir eru ban-eitruð gildra !

Alþingismenn - standið fram til varnar þjóðarhagsmunum - segið - NEI -  við ríkisábyrgð á Æsseif.................!


mbl.is Boða hávaða á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fordæmisgefandi !? - "Ríkisábyrgð" á Æsseif gjörning Landsbankans - banka í einka eigu í útlöndum!

Með samþykkt á ríkisábyrgð á Æsseif gjörningi Landsbankans væru stjórnvöld að skapa fordæmi fyrir önnur einkafyrirtæki..........!

Það er ekki fyrir séð hvaða flóðbylgja gæti skapast með fordæminu - hvað með Eimskip og flugfélögin?

Íslenska ríkið er ekki ábyrgt fyrir skuldum íslenskra fyrirtækja í útlöndum.

Stjórnvöld hafa ekki leyfi til( vísað er þar til 10.kafla almennra hegningarlaga 91. gr. - einnig 40. og 41.gr. Stjórnarskrárinnar) að knésetja íslensku þjóðina til skulda-ánauðar og varanlegrar fátæktar um ókomna framtíð vegna slíks gjörnings.............!

Stjórnvöld hafa ekki lagalega heimild til slíks gjörnings  - mikill meirihluti þjóðarinnar er alfarið á móti því að gangast undir ólögmætan skuldaklafa vegna Æsseif gjörnings Landsbankans.

Þingmenn á Alþingi Íslendinga - segið -NEI - við ríkisábyrgð á Æsseif !


mbl.is Vilja að ríkisábyrgð verði skoðuð betur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heimilin eru hornsteinn hvers þjóðfélags! En ríkisstjórnin setur heimilin í afgangsstærð - burðarása þjóðfélagsins!

Því er sem er í landinu í dag - fólksflótti skattgreiðenda hefur skollið á - nú þegar.........!

Þeir sem ennþá eru í landinu - hefur ríkisstjórnin rænt öllu sem hugsast getur til lífsviðurværis heimilum - atvinnu og jafnvel - greiðsluviljanum......!

Í Fréttablaðinu í dag boðar félagsmálaráðherra  Árni Páll Árnason u-beygju í málefnum heimilanna - með einni nefndinni ennþá - hvað er með Velferðarvakt ríkisstjórnarinnar - hefur Velferðarvaktin ekki aðallega komist að því hvað heimilin í landinu væru í góðum málum - meira að segja betri málum en í góðærinu..........!

Fyrir nokkrum dögum tjáði ráðherrann sig um það opinberlega að heimilin fengju ekki niðurfellingu skulda eða leiðréttingu á vísitölu húsnæðislána - heimilin voru bara í sömu afgangsstærðinni og þau hafa verið hjá þessari ríkisstjórn - og verður áfram þrátt fyrir allt u-beygju tal í þeim málum............!

Á þessum 10 mánuðum sem slagorðaríkisstjórn Jóhönnu hefur setið á ráðherrastólunum hefur þjóðin fengið reynslu af svikulum slagorðum ríkisstjórnar hennar - sem sum hljóma svo - skjaldborg fyrir heimilin - velferðarvaktin - velferðarbrúin - norræna velferðar félagshyggju stjórn Jóhönnu og Steingríms..........................!

Tekur einhver mark á meiru slíku............VARLA -!

"Burðarásar" þjóðfélagsins halda áfram að flýja land þar til gagnleg úrræði fyrir heimilin hafa verið raunverulega virkjuð!

 

 


mbl.is Ráðherra vill afskrifa skuldir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband