REI málið og Samfylkingin - til upprifjunar og upplýsinga af gefnu tilefni - því það er eins og það þvælist fyrir samfylkingarfólkinu að muna að Samfylkingin studdi þáttöku Orkuveitunnar að útrásar hugmyndinni !

Bæði Dagur B Eggertsson og Össur Skarphéðinsson tjáðu sig opinskátt um þá afstöðu Samfylkingarinnar - opinberlega á þessum tíma.

"Sexmenningarnir" sem kallaðir voru á þessum tím - Sjálfstæðisflokksborgarfulltrúarnir -  voru alfarið á móti gjörningnum - og hafðir að háði og spotti sem skilningsvana aular af Samfylkingunni.

Sjálfstæðisflokksborgarfulltrúarnir settu stopp á útrásarferlið og úr því varð þverpólitískur vinnuhópur sem vann svokallaða REI skýrslu.

Allt  þetta ferli er skráð og skjalfest svo það þýðir ekkert fyrir Dag B Eggertsson að koma fram í fjölmiðlum og breyta sögulegum staðreyndum.

Vert er að benda á viðtal við Össur í vefsjónvarpi Morgunblaðsins 14.4.2009

Einnig er ýtarleg samantekt með Össuri um sama efni á http://vollurinn.is/?action=malefnid_ nanar&id=19988

 


mbl.is Umræðu um stjórnskipunarlög hætt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Dagur kom fram í fréttum um daginn og reyndi að koma sökinni, enn einu sinni, á sexmenningana svonefndu í borgarstjórn, þ.e. þá sex sjálfstæðismenn sem stóðu í lappirnar í svokölluðu REI máli, en það fer Degi mjög illa að ljúga, það á ekki við hann, hann fer allur í flækju og þá er eins og Dagur breytist í nótt.

Tómas Ibsen Halldórsson, 18.4.2009 kl. 01:44

2 Smámynd: Ragnar Gunnlaugsson

Man vel eftir þessari afstöðu Samfylkingarinnar man að Össur grét og taldi Reykvíkinga tapa 10.miljörðum að stoppa þennan gjörning.

Ragnar Gunnlaugsson, 20.4.2009 kl. 14:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband