Göfuglyndið uppmálað ! - Hjálmar Sveinsson 1. varamaður - ætlar ekki að víkja af lista Samfylkingarinnar í Reykjavík !

Þó - HONUM - væri - MJÖG - misboðið að ná ekki inn sem  - AÐAL - í kosningunum......!

En það var komið að máli við - HANN - að fara ekki af listanum........... Manneskja mín............!

Göfuglyndur 1. varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar Hjálmar Sveinsson - skyldi hann komast í vasann hjá Jóni Gnarr - með félaga Degi ?


mbl.is Hjálmar tekur sæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristinn Karl Brynjarsson

Hjálmar Sveinsson, korteri fyrir kosningar, stuggar við Steinunni Valdísi, þegar kannanir benda til að hann verði 1.-2. varaborgarfulltrúi.  Steinunn Valdís, víkur.  Væringar milli manna hjá Samfó RVK hefjast.  Oddviti Samfó hendir flokksfélögum sínum, sem ændæfa þessum árásum á Steinunni, af vinalista á Facebook.

Opinber skýring Hjálmars fyrir afsagnarkröfunni var, að það sé ótækt að frambjóðandi safni rúmlega 12 milljónum vegna tveggja prófkjara. Í þeim útreikningum Hjálmars, virtist það vera innan marka að safna tæplega 6 milljónum, vegna eins prófkjörs.

 Svo er kosið og Hjálmar endar sem 1. varaborgarfulltrúi.  Fréttamaður RÚV eltir Hjálmar heim til sín, að lokinni kosningavöku, eða mælir sér þar mót við hann, því hann hafi þá yfirlýsingu fram að færa, að það hafi runnið á hann tvær grímur, með að vinna fyrir borgina sína, þar sem hann yrði ekki aðal og að hann hefði bara ekki hugmynd um, í hverju það fælist að vera varaborgarfulltrúi, eða hvað kaupið væri.   

 Mörður Árnason, sem datt inn á þing, við brotthvarf Steinunnar, sendir Degi skýr skilaboð, um að jákvæðasta túlkun á úrslitum kosningana, væri sú að Samfylkingin hefði haldið, 2/3 af sínu meðalfylgi í borginni. Þrátt fyrir það sem Samfylkingarfólk, hið minnsta, kallaði "skýra og uppbyggjandi" stefnuskrá.  Þarna er Mörður vissulega að benda á að Degi hefði mistekist, aðrar borgarstjórnarkosningarnar í röð, að leiða Samfylkinguna til valda. Í fyrra skiptið, eftir það Samfylkingarfólki fannst, "glimrandi" árangur  Samfylkingarinnar, innan R-listans, skila borgarbúum, "glæsilegri" borg og í seinna skiptið, eftir að hafa setið í minnihluta (utan 100 daga) í skugga "frjálshyggjuhryðjuverka" Sjálfstæðisflokks og Framsóknar.

 Karl Th. Birgisson, fyrrv. framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar og "æðsti" spunarokkur flokksins, tekur í sama streng og Mörður:  "Dagur Berþóruson Eggertsson, er ekki verðugur leiðtogi flokksins í borginni og telst hann því vart verðugur varaformaður og framtíðarleiðtogi.  Karl Th. tekur reyndar "sterkara" til orða og segir að Dagur eigi að víkja, sem oddviti Borgarstjórnarflokks Samfylkingar og þá væntanlega úr Borgarstjórn líka.

 Í öllum þessum "væringum" og "skeytasendingum", manna á milli í Samfylkingunni, fattar Hjálmar loks, að hann bauð sig fram fyrir fólkið í borginni (kjósendur sína og stuðningsmenn), en ekki vegna launanna og ákveður að taka sæti.  Svo verður bara hver og ein/n að meta það fyrir sjálfa/n sig, hvort að þetta sé þroskuð og meðvituð ákvörðun manns, sem um árabil hefur starfað í útvarpi, sem þáttarstjórnandi og samfélagsrýnir.

Kristinn Karl Brynjarsson, 31.5.2010 kl. 14:22

2 Smámynd: Benedikta E

Samfylkingarfólkið er bara að ganga af göflunum - það er greinilegt.

Benedikta E, 31.5.2010 kl. 21:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband