17.11.2009 | 23:18
Áskorun til þingmanna Alþingis Íslendinga ! Tungumál Alþingis Íslendinga er - Íslenska!
"Þrenning órofa er - land - tunga - og þjóð"
Að ný liðnum degi íslenskrar tungu þykir það við hæfi að hvetja Alþingismenn til að standa vörð um vort tungumál - Íslenskuna - ekki einungis hið talaða mál í þinginu - einnig ritmálið.
Einarðlega eru þingmenn hvatir til að skerpa á virðingu fyrir íslenskri tungu - og ganga eftir því sem ófrávíkjanlegri kröfu að öll skrifleg gögn sem berast til Alþingis og ráðuneyta séu rituð á íslenska tungu eigi þau að fá umfjöllun þingsins.
Má þar vísa til dómstóla Íslands þar sem Íslenska er þingmál - þangað þarf að skila inn öllum málsgögnum á Íslenskri tungu að öðrum kosti er málum vísað frá.
Mál sem vert er að nefna í þessu samhengi og eru til umfjöllunar á Alþingi eru Icesave málið og ESB - öllum málsgörnum ber málsaðilum að skila til Alþingis á íslenskri tungu.
Er þessi áskorun hér með lögð í hendur þingmanna til framfylgni.
Dagur íslenskrar tungu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.