17.11.2009 | 13:12
Músarholur Steingríms Joð - Hann lætur ekki deigan síga í leit að nýjum músarholum í skattlagningar skyni - Hann Steingrímur!
Nú er það samsköttun hjóna sem er sterklegur vonarpeningur og svo eignaskatturinn sem hann horfir dreymandi til.
Stenst samsköttun hjóna nokkra skoðun:Hjón eru tveir einstaklingar þó þeir gangi fram sameiginlega til þess stöðugleika ákvarðana að ganga í hjónaband - þá halda þau hvor sinni kennitölu.
Samsköttunin myndi láta margt slæmt af sér leiða sem skoða ber alvarlega áður en út í slíkt er farið. Fólk tekur til varnar gegn slíkri aðför - til dæmis með skilnuðum.........!
Eignaskatturinn: Fólk hefur lagt mikið á sig með dugnaði - eljusemi og mikilli vinnu að eignast eitthvað - til dæmis bara þak yfir höfuðið - Fyrir flesta er það ekki fyrirhafnarlaust að eiga þak yfir höfuðið og greiðir fyrir það skatta margskonar.
Svo þegar eitthvað af þrældómnum hefur skilað sér í eign - þá á jú mikið rétt að greiða eignaskatt af því að hafa jafnvel þrælað sér til óbóta fyrir þaki yfir höfuðið..........!
Einhverstaðar verður mörkin að draga í skattheimtu siðleysinu Steingrímur.
Líttu nú á reynslu annarra þjóða Steingrímur - með skattlagningu út úr kreppu - það hefur hvergi reynst vera fær leið - þar sem sú leið hefur verið reynd.
Skattatillögur kynntar á morgun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Vel mælt Benetikta, það væru öfugmæli mikil fyrir flokk fjölskylduflokks vinstri grænna, innan gæsalappa, að stuðla að fólk færi að skilja á pappírum vegna skattaaðgerða.
Óskar (IP-tala skráð) 17.11.2009 kl. 13:31
Já öfugmæli - vek mælt Óskar.
Rétt ein aðförin enn að fólkinu.
Benedikta E, 17.11.2009 kl. 14:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.