HVAÐA - HVAÐA - HVAÐA - ! Eru bara óeirðirnar innan Samfylkingarinnar komnar á borð fjölmiðla ! HVAÐA - HVAÐA ! - Valdabaráttan getur haft á sér hinar ýmsu birtingar myndir !

Var það ekki Ingibjörg Sólrún sjálf sem lagði þær Icesave línur sem Samfylkingin og Vg. hafa unnið eftir til dagsins í dag ?

Hvað var með leynifundina sem Ingibjörg Sólrún var á í Bretlandi í október 2008 þar sem hún var að véla um Icesavemálið við Breta.

Leki um þessa leynifundi var lekið til Íslands af breskum þar í landi - Össur var víst allavega með á einum af þessum fundnum.

Voru það ekki þeir fundir sem voru ástæða skyndifundar í Utanríkismálanefnd daginn fyrir kjördag í vor - man ekki betur en að það hvissaðist út þó svo að fundurinn væri með öllu mikið trúnaðarmál.

Í viðtali við Árna Þór Sigurðsson í fjölmiðli eftir þann fund Árni Þór átti sæti í nefndinni - sagðist hann ekkert mega tjá sig um fundarefnið vegna trúnaðar - "það væri rannsóknarnefnd Alþingis sem gæti gert það síðar"

Sif Friðleifsdóttir krafði Jóhönnu Sigurðardóttur sterkt að aflétta trúnaði af fundarefninu sem henni fannst að væri af þeim toga að þjóðin ætti rétt á að heyra um það - En Jóhanna Sigurðardóttir varð auðvitað ekki við því.

Ingibjörg Sólrún hefði átt að segja frá þessum fundum hjá - Sölva á Skjá einum - Neeeeeeeei

Kannski koma þeir fram hjá rannsóknarnefndinni eins og Árni Þór nefndi - þegar þar að kemur ?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband