Vantraust á sitjandi stjórnvöld Íslands - er afturgöngu viðhorf í erlendum fréttamiðlum þar sem eitthvað er fjallað um Ísland!

Sama viðhorf mætir Íslendingum í mæltu máli við útlendinga - sem segja "það breytist ekkert hjá ykkur á Íslandi fyrr en þið fáið aðra ríkisstjórn"............!

Útlendingar vita hvenær verið er að ljúga í þá - og stjórnvöld sem hafa slíkt orðspor til viðbótar augljósri vanhæfni og undirlægju hætti við útlendinga skapa hvergi  traust - síst hjá útlendingum......!

Að ógleymdum innanlands stjórnunarháttum - einræðisins ásamt fylgi fiskunum -  kúgun og valdníðslu - gegn þjóð og þingi...........! Uppskeran af því er -  vorkunsemi gagnvart íslensku þjóðinni vegna meðferðarinnar sem hún verði fyrir - heima fyrir -  af völdum stjórnvalda ...........!

Svo það er nokkuð ljóst að fer orð og flýgur af þeim Jóhönnu og Steingrími..........!

Það að 90%  stærstu fjármálastofnana treysta ekki íslensku fjármálaumhverfi samkvæmt könnun sem getið er um í F.T.- skýrir hvað málið er grafalvarlegt fyrir íslensku þjóðina...............!

Íslenska ríkisstjórnin skapar sitt orðspor sjálf með sínum orðum og gerðum - það getur enginn gert fyrir hana !

 

 

 


mbl.is Djúpt vantraust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband