Ágætu Alþingmenn og aðrir landsmenn - Við eigum ekki að greiða Æsseif trygginguna - samkvæmt grundvallarreglum Evrópusambandsins!

Bretar eru að reyna að þvinga okkur til að brjóta reglur Evrópusambandsins!

Þessar reglur segja skýrt og greinilega að - Við eigum ekki að borga Icesave trygginguna!

Grundvallar ákvæðin eru hér eftirfarandi.

1. Samkeppnis ákvæði. Til að vernda samkeppni-umhverfi á fjármálasviði - er nauðsynlegt að hindra ríkis-vald aðildarríkjanna í að veita bönkum eigin lands tryggingar og ríkisstyrki.

2. Tryggingarfræðileg-ákvæði. Trygginga-byrði verður að vera skilgreinanleg - svo að vit sé í iðgjöldum og rekstri tryggingafélaga. Án skilgreiningar trygginga-byrði væri tryggingarstarfsemi einfaldlega fjárhættuspil.

Þessi tvö atriði valda því að í Tilskipun 94/19/EB er lagt blátt bann við ábyrgðir aðildarríkjanna á fjármögnun innistæðu-trygginga-kerfanna.

Seðlabanki Evrópu hefur við mörg tækifæri staðfest framangreinda tilskipun - enda væri hann annars að vinna gegn samkeppnisreglum ESB og einnar grundvallar reglu tryggingarfræðinnar.

Ákvæði um lágmarks-tryggingu er póitiskt blekkingarspil. Ekkert þjóðþing getur tekið á sig óskilgreindar kröfur - ekki fremur en venjuleg tryggingafélög.

 


mbl.is Fyrirvarar um greiðsluþak og hve lengi verður borgað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Benedikta E

Upplýsingar varðandi framangreinda bloggfærslu fékk ég á heimasíðu Lofts Altice Þorsteinssonar - nánari upplýsingar er hægt að nálgast hjá honum á

http://altice.blog.is/blog/altice/entry/924528/

Benedikta E, 6.8.2009 kl. 17:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband