"Þið eigið gott á Íslandi þar er ekki herskylda " ESB og herskylda aðildarríkja !

Samkvæmt lögum ESB myndu Íslendingar þurfa að gegna herskyldu til varnar sameinuðu Evrópu verði Íslendingum þröngvað inn í ESB................

Fjölskylda mín á ættingja í Þýskalandi - í seinni heimsstyrjöldinni missti systir afa míns - manninn sinn og annan af tveim sonum sínum -  við herskyldu í stríðinu................. Systir hans afa míns sagði við bróður sinn "þið eigið gott á Íslandi þar er ekki herskylda"

Segir þetta ekki allt sem seigja þarf ?


mbl.is Enn ósætti um ESB-málið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er enginn evrópskur her starfandi, hvað þá að það sé herskylda í hann. Þú getur þá farið að hafa áhyggjur af einhverju öðru.

Björn (IP-tala skráð) 28.4.2009 kl. 12:21

2 identicon

Úff... þvílík fáfræði. Er þetta partur af anti-ESB áróðrinum sem er nú í gangi?

Það verður engin herskylda á Íslandi eftir inngöngu í ESB!  Sá her sem tekur væntanlega/kannski/aldrei til starfa undir fána ESB verður samansettur af núverandi herjum Evrópu og mun einungis þjóna friðagæslu og vörnum innan Evrópusambandsins.

Í guðana bænum haldið umræðunni á málefnalegu plani!

Úlfar (IP-tala skráð) 28.4.2009 kl. 12:44

3 identicon

Og eitt annað "Benedikta E". Okkur verður aldrei þröngvað inn í ESB. Ef meirihluti þjóðarinnar kýs að fara inn eftir frjálsa kosningu þá kallast það Lýðræði!!

Úlfar (IP-tala skráð) 28.4.2009 kl. 12:46

4 identicon

Ég held að það sé búið að afnema herskyldu í nánast allri Evrópu, það er hinsvegar atvinnuher sem hefur tekið við og mönnum ekki lengur skyldugt að sækja herþjónustu frekar en þeim þóknast.

Það er atvinnuher í Danmörku, Noregi, Spáni, Frakklandi þýskalandi svo þetta tal um herskyldu er fyrir löngu úrelt hugtak. Menn ganga sjálfviljugir í herþjónustu og fá greitt fyrir.

Kv Námsmaður erlendis.

Námsmaður Erlendis (IP-tala skráð) 28.4.2009 kl. 12:52

5 Smámynd: Benedikta E

Sæl Anna. Já vatnið okkar einstök auðlind - Það er orðinn vatnsskortur í  Kaupmannahöfn

Við getum verið algjörlega sjálfbær þjóð með allar okkar gjöfulu auðlindir

Stöndum vörð um fullveldi lands og þjóðar.

Takk fyrir kommentið.

Mbkv.  

Benedikta E, 28.4.2009 kl. 13:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband