28.12.2008 | 00:16
Vilja stjórnvöld frið við íslenska þjóð ???
Þá er ekki annað í boði en raunveruleg launalækkun á ofurlaun - Enginn skal hafa hærri laun en fjórföld lægstu laun - það gera 500 þúsund á mánuði - engva bjtlinga - bíla - dagpeninga og slíkt.
Engvir starfsloka samningar eru í boði.Ef einhver vill ekki una þessum kjörum þá hætti hann bara - og annar verður ráðinn í staðinn.
Framkvæmd með lagasetningu - tekur ekki langan tíma að skella á einu slíku - vanir menn á Alþingi Íslendinga.
Munið allt gegnsætt og uppi á borðum ! ! !
Á launum hjá íslensku þjóðinni - munið það.
Það er nóg af vel menntuðu fólki með reynslu - á lausu fyrir góð störf - og 500 þús.á mán.
Svo eru það ofurlauna - eftirlauna löginn - afnema þau nú þegar með sama hraða og þeim var komið á - á stuttri morgunstund á laugardagsmorgni - allir sitji við sömu kjör og ríkisstarfsmenn.
Stjórnvöld hafa tækifæri núna - að sýna þjóðinni - hvað í þeim býr .
Íslenska þjóðin bíður átektar - En ekki lengi.
Ef hægt er að lifa af lægstu launum einföldum - þá er hægt að lifa góðu lífi af þeim fjórföldum.
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.