17.6.2012 | 14:48
Fátæktin er skattlögð hjá Steingrími og Jóhönnu - Húsnæðislausir sofa í strætóskýlum og kjallaratröppum.
En Jóhanna hreykir sér á Austurvelli - Í ávarpi sínu á Austurvelli stærði Jóhanna sig af auknum jöfnuði í þjóðfélaginu og Jóhanna gerði betur í sjálfhólinu og sagði "Allt bendir til að lífskjör alls almennings hér á landi haldi áfram að batna - líkt og undanfarin tvö ár"
Sumir kunna ekki að skammast sín.
Næstu hungurbiðraðir - Mæðrastyrksnefndar - Fjölskylduhjálparinnar og Samhjálpar - ættu að leggja leið sína í - mötuneyti Jóhönnu og Steingríms í Alþingishúsinu þar sem allt er í boði skattborgaranna og meðal annarra - þess fólks sem ekki á til hnífs og skeiðar fyrir sig og fjölskyldur sínar og þarf að leita sér ölmusu í hungurbiðröðum hjálparsamtaka -
Þetta fólk ætti að fara í mötuneytið í Alþingishúsinu og fá þrí eða fjór réttaðan jólamat á hverjum degi.
Hvað eru þeir margir sem bornir hafa verið út af heimilum sínum út á götu - vegna fjárnáms - Jóhanna hefðu átt að segja frá því í ávarpi sínu og eins hvað það eru margir sem koma í mat hjá Samhjálp á degi hverjum - 150 manns og hryllilegar aðstæður þess fólks "venjulegs" fólks-
Jóhanna hefði líka átt að segja hvað margir það eru sem koma í hungurbiðraðirnar hvert sinn sem er matarúthlutun í plastpoka hjá ölmususamtökum - samkvæmt fjölmiðlaumfjöllun er þar yfir 200% aukning á milli ára.
Hver er aðkoma Jóhönnu og Steingríms að fátækt landsmanna? JÚ - Steingrímur og Jóhanna skattleggja fátæktina.
Stjórnarskrár varinn réttur nauðstaddra er þver brotin af því opinbera en í 76.gr. Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands segir svo "Öllum sem þess þurfa,skal tryggður í lögum réttur til aðstoðar vegna sjúkleika,örorku,elli, atvinnuleysis ,örbirgðar og sambærilegra atvika"
Samkvæmt stjórnarskrár vörðum rétti nauðstaddra ber því opinbera að sjá fólki í neyð fyrir nauðsynlegu lífsviðurværi - þar flokkast undir fæði - klæði og íbúðarhæft húsnæði - Fólk í neyð á ekki að þura að leita sér ölmusu við heilsuspillandi og niðurlægjandi aðstæður eins og hungurbiðraðir og útigang.
Opinbera "velferðarkerfið" ýtir lögboðinni ábyggð sinni yfir á hjálparstofnanir sem ekki hafa úrræði til að leysa vanda þessa fólks - og ættu því að leggja niður þá aðstoð sem í boði er frá þeim - snúa dæminu við og vísa fólki í neyð þangað sem lögboðin úrræði eiga að vera til staðar hjá -Opinbera "velferðarkerfinu " í staðin fyrir að Opinbera "velferðarkerfið" vísar nauðstöddum til hjálparstofnana til að ýta frá sé þeirri lagalegu ábyrgð sem því ber að uppfylla.
Náð lengra en mig dreymdi um | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.