Hvað getur fólk gert sem lendir í aðstæðum eins og Eyjólfur Karl er að lýsa ?

Það er ekki bara það að það sé ekki búandi í húsi sem gert hefur verið að gistiheimili að hluta til - verðgildi eignarinnar rýrnar þó fólk vildi flytja og selja - það er ekki hægt að selja án þess að segja frá aðstæðum og hver vill kaupa íbúð í svona húsi?

Þetta er ekkert smá mál fyrir fólk að lenda í.


mbl.is „Ekki hægt að búa við þetta“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Dóra Gunnarsdóttir

Það sem verra er, mig grunar að það sé ekkert hlaupið að því að leita réttar síns, jafnvel þó hann sé morgunljós. Og þó það takist, eru svona mál ekki afgreidd á einni nóttu. Megi Eyjólfi Karli og öðrum íbúum hússins vel farnast.

Anna Dóra Gunnarsdóttir, 13.6.2012 kl. 23:55

2 Smámynd: Benedikta E

Hvað segja Lög um fjöleignarhús - þar er tekið á ýmsum þáttum varðandi nýtingu - umgengni - réttindi og skyldur.

Benedikta E, 14.6.2012 kl. 10:05

3 identicon

Félagi minn lenti í álíka aðstöðu þegar leyfislaus gistiþjónusta fór af stað í fjölbýli þar sem hann bjó. Félaginn tók upp á þeim sið að fylla skrár leiguíbúðanna af tannstönglum í hvert skipti sem hann gekk um. Þar með komust viðskiptavinir gistihússins ekki inn í íbúðirnar. Að endingu gafst rekstraraðilinn upp á þessum barningi og aðkoma lögreglu kom ekki til þar sem reksturinn var ólöglegur.

Stundum þarf að láta hart mæta hörðu.

Snorri Goði (IP-tala skráð) 14.6.2012 kl. 11:51

4 Smámynd: Benedikta E

Útrásar"ræningjar" eru á fullu sveimi með fulla vasa af peningum og kaupa upp það sem þeim sýnist og valta svo yfir fólk með yfirgangi og frekju.

Eitthvað verður fólk að gera til að útrýma svona yfirgangi - tannstönglarnir eru ekki verri en hver önnur friðsöm hugmynd - Snorri.

Benedikta E, 14.6.2012 kl. 12:22

5 identicon

Tonnatak er lang best

pjakkur (IP-tala skráð) 14.6.2012 kl. 19:50

6 Smámynd: Benedikta E

pjakkur - tonnatak + tannstönglar = magnað

Benedikta E, 14.6.2012 kl. 22:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband