18.3.2011 | 23:13
Af hverju - NEI - við Icesave III ?
1 ) Icesave er líklega sakamál sem ekki ennþá hefur verið rannsakað til fulls.
2 ) Íslenska þjóðin skuldar ekki löglausar fjárkröfur Breta og Hollendinga.
3 ) Íslenska þjóðin á ekki að greiða óreiðuskuldir áhættusækinna fjárglæframanna einkabanka.
4 ) Ólöglegt er með öllu að skuldsetja íslensku þjóðina með jafnvel hundruðum milljarða fjárskuldbindingu - óskilgreindri fjárupphæð með opnu skuldabréfi / víxli.
5 ) Ofur skuldsetning ríkissjóðs er ólögleg aðför að þjóðinni og brot gegn Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands samkvæmt 40.gr. 41.gr. og 77.gr.
6 ) Að skuldsetja íslensku þjóðina með slíkum hætti myndi að öllum líkindum leiða til þjóðargjaldþrots - með eignamissi - fátækt og vesöld til langrar framtíðar.
7 ) Komandi kynslóðir - börn - barnabörn og barnabarnabörn yrðu hneppt í skulda og fátæktarfjötra til framtíðar.
8 ) Ríkisábyrgð með óútfylltu skuldabréfi /víxli - gæfi Bretum og Hollendingum heimild til að ganga að eigum þjóðarinnar - auðlindum - fyrirtækjum - landareignum og öðru sem þá fýsti að taka yfir.
9 ) Ísland væri ekki lengur frjálst og fullvalda ríki - heldur nýlenda Breta og Hollendinga.
10) Þess vegna segir frjáls og fullvalda þjóð - NEI - við löglausri Icesave fjárkúgun Breta og Hollendinga.
Sameinuð stöndum vér! - Fellum Icesave-lögin NEI - við Icesave III !
Íslandi allt !
Athugasemdir
Undir lið 5 ) þar sem vitnað er til Stjórnarskrárinnar þá féll niður 42.gr. sem er mikilvæg og þarf að lesast í samhengi við þær fyrri - en þar segir svo "skal í frumvarpinu fólgin greinagerð um tekjur og gjöld" - Það er ekki nægilegt að setja spurningarmerki í gjaldalið frumvarpsins þar þarf að tilgreina fast ákveðna tölu sem lögin heimila eða heimila ekki - en spurningamerki í stað tölu er brot á Stjórnarskrá - og við slíku Landráði segjum við - NEI - !
Benedikta E, 19.3.2011 kl. 15:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.