Fann jarðsklálftann í Reykjavík í austur hluta borgarinnar.

Hann var eins og bylmingshögg á húsið með hávaða dynk - ég stökk upp - í kuldastígvél og setti úlpu og útiklæðnað við útidyrnar. Til öryggis - Mér dauð brá. Vona að það komi ekki annar.
mbl.is Jörð skalf í borginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Bý í Grafarvoginum við Voginn. Fann ekkert fyrir jarðskjálftanum í húsi mínu.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 11.11.2010 kl. 01:04

2 identicon

Ég fann ekki fyrir neinu hér í Salahverfinu í Kópavoginum.

Andri (IP-tala skráð) 11.11.2010 kl. 01:07

3 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Fann hann skýrt og greinilega hér á Álftanesi og hann virkaði svipað og þú lýsir. Bloggaði einmitt um hann áðan og var undrandi á að hann mældist ekki stærri.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 11.11.2010 kl. 01:08

4 Smámynd: Benedikta E

Ég er í smáíbúðahverfinu svo það er ekki langt frá þér - hann hefði alveg getað verið 3.5 - 4 að styrk. Vona bara að það komi ekki fleiri.

Benedikta E, 11.11.2010 kl. 01:10

5 identicon

Er í Hólahverfinu og fann skjálftann vel. Ég hélt að hann hefði verið mikið stærri !

Ína (IP-tala skráð) 11.11.2010 kl. 02:17

6 identicon

Náttúruguðirnir að mótmæla lélegri ríkisstjórn?

Geir Jónsson (IP-tala skráð) 11.11.2010 kl. 02:24

7 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Komið þið sæl þetta er ekki eðlilegt þótt jarðfræðingar segi það vegna þess að þenslan á þessu svæði er gríðarleg en eldgos sé ég ekki koma upp fyrr en á öræfum milli jökla að Vatnajökli.

Sigurður Haraldsson, 11.11.2010 kl. 04:11

8 identicon

Ég fann ekkert hér á Kárnesinu. Var vakandi að horfa á góða mynd.

anna (IP-tala skráð) 11.11.2010 kl. 11:22

9 identicon

Átti að vera Kársnesinu

anna (IP-tala skráð) 11.11.2010 kl. 11:26

10 identicon

Ég fann hann vel hérna í Norðurmýrinni. En mér fannst ekki hristast mikið, meira svona sterkur þytur og hávaði. Var að lesa bók um eldstöðvar á Íslandi þegar ég finn skjálftann:) Sagði við manninn minn, var þetta ekki jarðskjálfti? He,he,:)) Fór ekki einu sinni framúr, las áfram um Öræfajökul og sofnaði svo vel á eftir. Skrítin ég:)

Hafdís (IP-tala skráð) 11.11.2010 kl. 14:21

11 identicon

Var einmitt á kársnesinu líka, fann ekki neitt , finn reyndar aldrei fyrir jarðskjálftum

María (IP-tala skráð) 11.11.2010 kl. 19:05

12 Smámynd: Hlöðver Stefán Þorgeirsson

Ég skil þetta ekki alveg...

2,8?

Ég bý á Húsavík og fyrir þrem, fjórum árum varð skjálfti skammt frá Flatey upp á vel rúmlega fjóra og ég tók varla eftir honum.

Flatey - Húsavík er svipað og frá Keili til austurhluta Reykjavíkur.

Þetta er merkilegt.

Hlöðver Stefán Þorgeirsson, 11.11.2010 kl. 21:44

13 Smámynd: Magnfreð Ingi Ottesen

Ég bý í Hafnarfirði, fann ekki fyrir þessum skjálfta.

Magnfreð Ingi Ottesen, 12.11.2010 kl. 02:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband