27.8.2010 | 09:35
Hagræðingu ekki hækkanir: Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn standa vörð um lífskjör borgarbúa.
Hanna Birna Kristjánsdóttir oddviti Sjálfstæðismanna í borgarstjórn - gagnrýnir harðlega fyrirhugaðar gjaldskrárhækkanir Orkuveitunnar upp á tugi prósenta - eftir ráðstjórn Bestaflokksins í Orkuveitunni - þetta kemur fram í viðhengdri grein sem Hanna Birna skrifar í Morgunblaðið .
En borgarstjórinn Jón Gnarr ber ekki sömu áhyggjur í brjósti og Hanna Birna hefur vegna lífsafkomu borgarbúa - NEI - NEI -
Borgarstjórinn Jón Gnarr - reifar sínar áhyggjur á heimasíðu sinni í gærkvöldi og áhyggjur hans snúast um hann sjálfan en ekki borgarbúa hvort þeir hafi salt í grautinn NEI - NEI -
Borgarstjórinn kvartar sáran yfir því að Sjálfstæðisflokkurinn sé ekki nógu duglegur við að brosa til hans - þó hann sé alltaf að brosa til þeirra - þannig tjáir borgarstjórinn áhyggjur sínar.
Grein Hönnu Birnu í Morgunblaðinu í gær: Íbúar geta ekki tekið meira á sig. Uppörvandi lesning fyrir borgarbúa að vita að það eru borgarfulltrúar sem hugsa um þeirra hag og lífskjör.
Hanna Birna: Íbúar geta ekki tekið meira á sig | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.