13.8.2010 | 11:16
Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins segir á mbl. að staða Gylfa Magnússonar sé í uppnámi og vill að Alþingið sé kallað sama vegna þess máls.
Það er ekki að undra - en það eru ekki bara blekkingar Gylfa Magnússonar gagnvart þjóð og þingi - Blekkingar Gylfa Magnússonar spegla blekkingar ríkistjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur gagnvart þjóð og þingi - gegn þjóðarhag.
Enginn hefur gleymt öngþveiti því sem Hæstiréttur olli í ríkisstjórninni þegar Hæstiréttur dæmdi í myntkörfu lánunum eftir gildandi landslögum frá 2001
Ríkisstjórnin hafði viðhaft sömu blekkingarnar og Gylfi Magnússon - Ríkisstjórnin er öll í uppnámi og á öll að víkja. - Skjaldborgir þeirra hvert yfir öðru og traust yfirlýsingar af sama toga eru bara ömurlegar og sýna það eitt og sanna að öll ríkisstjórnin rær á einni og sömu áralausu fleytunni og nær ekki til lands.
Líklegt má ætla að formleg krafa verði gerð um að Alþingi komi saman ekki seinna en í næstu viku - málið er brýnt og grafalvarlegt - það varðar þjóðarhag.
Ríkisstjórn sem gert hefur sig bera að blekkingum og beinum lygum gagnvart þjóð og þingi - í mörgum málum er rúin öllu trausti og á að víkja - STRAX -
Bjarni: Staða Gylfa í uppnámi" | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.