Nú verður Þórólfur stóri bróðir aðalleikarinn í spunanum um Íslandsstofu stöðuveitinguna - í þeirri von að litli bróðir ráðherrann gleymist - og vanhæfni ráðherrans í öllum málum.
Svo er það líka gott tækifæri fyrir Samfylkinguna að sýna að hún ráði aðra til starfa en bara gullkálfa Samfylkingarinnar.
NÚ - passar það heldur betur að Þórólfur Árnason dyggur Samfylkingar gullkálfur verði bara öskur - REIÐUR - í fjölmiðlum - yfir því að vera ekki ráðinn Íslandsstofu forstjóri - sem hann hefði örugglega verið skipaður til - ef Árni Páll litli bróðir hefði ekki verið búinn að klúðrað ráðningu umboðsmanns skuldara jafn rækilega og honum tókst að gera.
Árni Páll ráðherra er sérfræðingur í vanhæfni og klúðri mála - það vita allir sem eyru hafa.
En Samfylkingar gullkálfurinn Þórólfur á stóru stöðuna til góða hjá Samfylkingunni - ef henni vinnst þá tími til að launa Þórólfi þennan greiðann - Sjáum bara.
En öskrandi átök eru á leynifundum Samfylkingarinnar um bæði þessi mál - Íslandsstofu og Umboðsmann skuldara.
Allt hið sérkennilegasta mál | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.