Hugsa sér - loksins - ASÍ - gefur "velferðaróstjórn" Samfylkingarinnar og Vinstri grænna falleinkun - það kom að því að forseti ASÍ komst ekki upp með annað en að standa með þeim sem hann er í forustu fyrir!

Kröfurnar voru margvíslegar og mikil gagnrýni á ríkisstjórnina - á fundi formanna aðildarfélaga ASÍ-

Kjarasamningar í haust munu verða reknir áfram með hörku - skyldi ríkisstjórn Jóhönnu og Steingríms hanga þá enn á stólunum - ólíklegt.

Sumir fundarmenn töldu ríkisstjórnina vera komna á endastöð - án efa eru það margir landsmenn sem deila þeirri skoðun.


mbl.is Þungt hljóð í formönnum aðildarfélaga ASÍ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristinn Karl Brynjarsson

Ríkisstjórnin, hóf sína vegferð á endastöð og hefur ekki komist úr sporunum, á þessu rúma ári sem hún hefur starfað.
 Ríkisstjórnin hefur þó af og til, bylt sér í bælinu, til þess að gagnast við ólögvörðum Icesavekröfum Breta og Hollendinga og til þess að gera "bjölluat" í Brussel.  Ríkisstjórnin, hefur líka örítið bylt sér í bælinu, þegar einkavinum, vantar greiða.  Frumvarpi til laga um ívilnanir erlendra fjárfesta hér landi, sem að nú situr fast í Fjármálaráðuneyti vegna skattamála, að því er sagt er, var breytt í "sérlög" fyrir gagnaverið í Reykjanesbæ.  Var það meðal annars gert, vegna þess að þar kemur að auk Björgólfs Thors, Vilhjálmur Þorsteinsson, varaþingmaður Samfylkingarinnar og formaður stýrihóps iðnaðarráðherra um orkunýtingu.
  Á meðan hin  eiginlegu lög, liggja í salti hjá Steingrími og Indriða, bíða hið minnsta 10 stór fjárfestingarverkefni, afgreiðslu þessara laga. 
  En ef þú ert í "einkavinaklúbbi" Samfylkingarinnar, þá færðu "sérlög".

Kristinn Karl Brynjarsson, 25.5.2010 kl. 17:22

2 Smámynd: Benedikta E

JÁ samanber styrkja - geiðanda Landsbankans Björgólf Thor.

Benedikta E, 25.5.2010 kl. 17:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband