Sigrún Björk Jakobsdóttir fyrrum bæjarstjóri á Akureyri - Hver er ástæðan fyrir öllu þessu fári - sem þyrlað hefur verið upp - þó hún gerði kaupmála við kallinn sinn?

Ekki hefur hún gert neitt af sér - Ekki hefur hún  orðið þess " heiðurs " aðnjótandi að vera getið í Rannsóknarskýrslu Alþingis - Ekki er hún styrkjadrottning - Ekki hefur þess verið getið að hún hafi tekið þátt í útrásinni.

Hvað hefur manneskjan gert af sér ég hef fylgst með þessu fári sem þyrlað hefur verið upp í kringum hana í fjölmiðlunum - eins heyrt/ séð viðtal við hana í sjónvarpinu - alltaf verið að búast við að heyra krassandi ástæðu - EN bara hvað ?

Ég get ekki séð að manneskjan hafi gert neitt af sér - né heldur kallinn hennar.

Gátu þau ekki gert með sér kaupmála án þess að eitthvað gruggugt væri við það.

Er ekki af nógu að taka í þjóðfélaginu sem er gagnrýni vert og meira en það - þó ekki sé verið að búa til bara eitthvað um fólk til að koma því í fjölmiðla. LÉLEGT .......! Bara alvöru fréttir - TAKK - !


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband