Móðursýki hefur gripið um sig hjá ferðaþjónustunni - vegna varnaðarorða forseta Íslands á BBC í gær - þá reynir ferðaþjónustan að gera forsetann að einhverjum sökudólg !Reynið að hemja móðursýkina og hugsa rökrétt !

Forsetinn sagði ekki annað en það sem allir eiga að vita - að í framhaldi af Eyjafjallajökulsgosi getur orðið Kötlugos sem yrði margfalt verra en gosið í Eyjafjallajökli.

Sama er með flugflota heimsins honum hefur hnignað - gömlu vélarnar voru með betur úrbúna hreyfla gegn öskugosi - forsetinn vakti athygli á þessu mikilvæga atriði og að flugfélög í Evrópu undirbyggju sig fyrir Kötlugos.

Þar með er forseti Íslands búinn að vara við svo ekki verður hægt að ásaka Íslendinga síðar að hafa ekki varað við - Nú hefur sjálfur forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson varað heimsbyggðina við og bent á þarfar endurbætur á flugvélaflotanum.

Frábært hjá forseta Íslands.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband