Forsetinn sagði ekki annað en það sem allir eiga að vita - að í framhaldi af Eyjafjallajökulsgosi getur orðið Kötlugos sem yrði margfalt verra en gosið í Eyjafjallajökli.
Sama er með flugflota heimsins honum hefur hnignað - gömlu vélarnar voru með betur úrbúna hreyfla gegn öskugosi - forsetinn vakti athygli á þessu mikilvæga atriði og að flugfélög í Evrópu undirbyggju sig fyrir Kötlugos.
Þar með er forseti Íslands búinn að vara við svo ekki verður hægt að ásaka Íslendinga síðar að hafa ekki varað við - Nú hefur sjálfur forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson varað heimsbyggðina við og bent á þarfar endurbætur á flugvélaflotanum.
Frábært hjá forseta Íslands.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.