14.4.2010 | 12:11
Styrkir frá Landsbankanum til Samfylkingarinnar voru umtalsvert hærri en Samfylkingin hefur gefið upp - Það kemur fram í Rannsóknarskýrslunni !
Skyldu ofur styrkveitingar Landsbankans til Samfylkingarinnar hafa haft eitthvað að gera með það að Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra smalað inn hrunaliði úr Landsbankanum í náhirð sína í stjórnarráðinu ?
Lítum á eftirfarandi : Úr hrunaliði Landsbankans eru aðstoðarmenn og ráðgjafar - ráðherra Samfylkingarinnar í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur.
"Aðstoðarmaður Árna Páls Árnasonar félagsmálaráðherra er Yngvi Örn Kristinsson - hann var framkvæmdarstjóri Verðbréfasviðs Landsbankans.
Einnig er Yngvi Örn Kristinsson - RÁÐGJAFI - forsætisráðherra Jóhönnu Sigurðardóttur.
Aðstoðarmaður Gylfa Magnússonar efnahags og viðskiptaráðherra er Benedikt Stefánsson - hann var í Greiningardeild Landsbankans.
Skrifstofustjóri í Viðskiptaráðuneytinu er Björn Rúnar - hann var forstöðumaður í Greiningardeild Landsbankans.
Aðstoðarmaður Katrínar Júlíusdóttur iðnaðarráðherra er Arnar Guðmundsson - hann var í Greiningardeild Landsbankans.
Fulltrúi Íslands í Alþjóða gjaldeyrissjóðnum á vegum ríkisstjórnar Jóhönnu er Edda Rós Karlsdóttir hún var forstöðumaður Greiningardeildar Landsbankans."
Þannig er nú það - Samfylkingin virðist hafa verið með tærnar vel innan dyra í Landsbankanum ef ekki bara hælana líka !
Hærri styrkir en Samfylking gaf upp | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.