Borgarbúar hafa ekki gleymt 12 ára - R lista martröðinni - í Reykjavíkur-borg - borgarbúar láta slíkt ekki yfir sig ganga aftur - það er öguggt og víst !

Eigum við að stikla á stóru með - R lista martröðina - 1) Miðborgin var lögð í rúst - með - súlustöðum - víðsvegar um miðbæinn  - 2 ) Strætisvagnakerfið var lagt í rúst - fyrir offjár - 3 ) Húsnæði í eigu borgarinnar selt - lægst já lægst bjóðenda - alveg eins - og starfsemi borgarinnar flutt í leiguhúsnæði á okurleiguverði - til fleiri ára leigusamningar.  - 4 ) þétting byggðar á forsendum verktaka ekki íbúanna - grenndarkynning og annað í skipulagsferli virt að vettugi - seilst var inn á lóðir - garða nágranna svo hægt væri að þjóna þörfum verktaka og troða stórhýsinu niður undir formerkjum þéttingu byggðar - 5) byggingarlóðir voru seldar á uppsprengdu uppboðsverði í úthverfum - 6) Hvernig var virðingarleysið við aldraða og þeirra þarfir - hvað fjölgaði hjúkrunarrýmum fyrir aldraða mikið í Reykjavík - á R lista 12 ára tímabilinu - þeim fjölgaði ekki neitt -  JÁ ekki neitt.........!

7 )  Hvernig var farið með Heilsuverndarstöðina við Barónstíg  sem var í eigu borgarinnar - best að fá það rifjað upp fyrir kosningarnar    -  8) Hvernig voru fjárreiður borgarinnar eftir 12 ára R lista martröðina - það kemur í ljós fyrir borgarstjórnarkosningarnar 29. maí 2010

 


mbl.is Sjálfstæðisflokkur í sókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband