Færsluflokkur: Dægurmál

Ónýtar öryggismyndavél - vanræksla á hálkuvörnum og snjómokstur í skötu líki ógnar öryggi borgarbúa !

 70 manns á slysadeild á einum sólarhring vegna vanrækslu á hálkuvörnum og skorti á snjómokstri - Allur borgarbragur er á hraðri niðurleið undir ofríki núverandi meirihluta borgarstjórnar - sem ekkert ræður við sitt verkefni. Hvaða málaflokkur verður það næst sem veldur Gnarrinum "skaðabótaskyldu" vegna vanrækslu - það gagnast ekki borgarstjóra og öðrum Gnarrurum að flýja af hólmi með því að mæta ekki á borgarafundi og láta ekki ná í sig - Lélegt - ! Er það ekki að hagsmunum borgarbúa sem þetta fólk á að vinna að ? - Skammist ykkar - !


mbl.is Ónýtar öryggismyndavélar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samfylkinginer ekki stjórntæk með neinum - hvort sem það er í sveitarstjórnum - bæjar - eða á Alþingi.

Farið bara yfir svæðið og takið stöðuna á undanförnum árum - þar sem Samfylkingin hefur verið með meirihlutanum hefur samstarfið fokkast upp sumstaðar oftar en einu sinni á sama stað.Sjáið stöðuna í þinginu núna - er nokkuð hægt að búast við því að það verði betra í Kópavogi - Hver maður veit hvernig Jóhanna talaði um " íhaldið " á fundinum sínum um helgina. Samfylkingin er ekki stjórntæk með neinum. Mestu mistök sem hent hafa Sjálfstæðisflokkinn var að fara í ríkisstjórnarsamstarf með Samfylkingunni.
mbl.is Ræða myndun nýs meirihluta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hrokinn - dómgreindar-leysið og græðgin sem rúmast í einni manneskju er meira en nóg til að lýsa því hvað óhæf hún er!

Jóhanna er vanhæfur forsætisráðherra og á að víkja - STRAX - ! Fólk er farið að fyllast óhug að heyra hvernig hún talar - verandi í þessu starfi sem hún ræður ekki við.
mbl.is Vill klára málin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

www.askoruntilforseta.is - Nú hafa tæp 11.þúsund skráð sig það er gott á sólarhring !

En gerum betur ! -  Skorum á Ólaf Ragnar Grímsson að gefa áfram kost á sér í forseta embætti Íslands. 
mbl.is 10.000 undirskriftir á sólarhring
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sko Orkuveituna hún tekur ekki "eftir helgi" Gnarrinn á bilanir.

Það er eins gott að borgarbúar hafi ljós og hita inni hjá sér - þeim fækkar óðum sem fara út úr húsum í Reykjavík vegna - HÁLKU og ÓFÆRÐAR - þar er Gnarrinn "eftir helgi" eða bara í - VOR -
mbl.is Ekki enn fullt jafnvægi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í ávarpi forseta Íslands í dag tilkynnti hann ekki þjóðinni að hann ætlaði - ekki - að bjóða sig fram til endurkjörs.

Í ávarpi forseta eru meira vangaveltur og skilgreining á aðstæðum og möguleikum sem hver og einn getur svo túlkað eftir eigin skilningi - vonum og væntingum. En Ólafur Ragnar Grímsson hefur ekki tilkynnt þjóðinni að hann gefi ekki kost á sér sem forseti Íslands fimmta kjörtímabilið - á meðan hann gerir það ekki með afdráttarlausum hætti þá eru jafn miklar líkur á því að hann bjóði sig fram og hann geri það ekki.

Þeir sem hafa afdráttarlausar óskir um að forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson bjóði sig fram til endurkjörs þeir skori bara á hann að gefa kost á sér áfram.


mbl.is Býður sig ekki fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

JÁ endilega:Hendið Jóni Bjarnasyni út úr ríkisstjórninni það er allt sem þarf til að fella ríkisstjórnina -

og þurrka út Vinstri græna þar sem Steingrímur sæti einn eftir og kysi sjálfan sig.
mbl.is Óánægja vegna breytinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það á ekkert að selja Perluna - og með svona pukri - Það var eins gott að Kjartan Magnússon og Sóley Tómasdóttir kipptu snögglega í bjöllu strenginn !

Var R - listinn ekki búinn að rústa eigum Borgarinnar nægilega á brunaútsölum - NÚ - skal það vera stopp !!! - Perlan verður ekki seld einhverjum pukur vinum "gnarraranna".
mbl.is „Ástæðulaust upphlaup“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kaupmenn tala ekki verslunina niður á meðan einhver von er að kreista klink úr veski náungans.

"Gróðinn" kemur fram á ársreikningunum - það eru ekki allir í verslunarhugleiðingum sem sjást á rölti eða skoða í búðarglugga.
mbl.is Gott hljóð í kaupmönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar forseti vor hefur upp raust sína og mælir fyrir þjóðarhag - hljómar boðskapur hans um heimsbyggð alla - Allir hlusta á það sem forseti vor hefur að segja.

Hvalveiðar eru stjórnarskrár varinn réttur Íslendinga.Þegar formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands öskrar út í vindinn - sín stóru orð gegn forseta Íslands og Íslendingum - hlustar enginn.
mbl.is Sakar forsetann um lýðskrum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband