Færsluflokkur: Utanríkismál/alþjóðamál
![]() |
Var gestur Birgittu í sendiráðinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.1.2011 | 14:32
Birgittu málið - er það ekki öllu alvarlegra en meintar njósnir bandaríska sendiráðsins - í ruslafunnum nágrana sinna við Laufásveginn?
![]() |
Sérkennilegt og grafalvarlegt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.9.2010 | 17:42
Hver skrifaði ræðuna fyrir Jóhönnu? - Úr ræðu Jóhönnu á leiðtogafundi Sameinuðuþjóðanna.
![]() |
Hlustum á raddir kvenna og barna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Í yfirlýsingu sem LÍÚ sendi í erlenda fjölmiðla segir að Ísland eigi fullan rétt á að veiða makríl innan íslensku efnahagslögsögunnar á sama hátt og Norðmenn og aðildarríki Evrópusambandsins hafi rétt á makrílveiðum innan sinna efnahagslögsögu.
Frábært hjá Landsambandi íslenskra útvegsmanna að gera þessum kúgurum ljóst að þeir hafa ekkert með málin að gera á Íslandi - þeir halda þó ekki að makríllinn sem hangir í torfum hér upp við bryggjur fari að snúa sér til annarra átta og synda inn í efnahagslögsögu Evrópubandalagsríkjana eða norska lögsögu - þeir ættu bara að senda makrílnum hótunar bréf.
Frábært hjá LÍÚ að sýna þessum loddurum að Íslendingar séu þéttir í lund og kviki hvergi fyrir hótunum ESB ................
![]() |
Sendu yfirlýsingu til erlendra miðla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ingibjörg Sólrún stimplaði sig inn eða út hvernig sem menn vilja orða það - þegar hún var utanríkisráðherra og eyddi mest af þeim tíma sem hún var í því embætti - í Palestínu og öðrum löndum þar í kring.
Hún gekk um með slæður að hætti innfæddra ( þetta var sýnt í sjónvarpinu) og eftir því sem talað var um þá - var markmið íslenska utanríkisráðherrans að verða friðarleiðtogi þarna á þessu svæði.
Ef rétt er munað þá var eitthvað um fjárveitingar ( að sjálfsögðu úr íslenska ríkiskassanum ) frá íslenska ráðherranum hægri vinstri til ýmissa málefna í þessum löndum.
Síðan tók við margfrægt verkefni hennar - Öryggisráðið - sem öllum er kunnugt og kostaði fúlgu fjár fyrir ríkiskassann - það var ekki horft í það þó íslenska hagkerfið væri þá komið á bjargbrúnina.
En þegar Ingibjörg Sólrún var á endasprettinum í Öryggisráðs óráðinu - þá ferðaðist hún um Kyrrahafseyjarnar í einkaþotu frú - litla Bjögga Thor - og var frúin með í þotu-ferðinni.
En Ingibjörg Sólrún lét ekki þar við sitja nú sló hún sig til riddara og stofnaði sjóð upp á 420 milljónir til stuðnings við smá eyríki í Kyrrahafinu -
Ríkissjóður Íslands var látinn borga sjóðinn - fyrir smá eyríkin í Kyrrahafinu. Í Morgunblaðinu 24.september 2008 var lítil frétt um stofnun þessa sjóðs - annað hefur ekki sést eða heyrst um þennan sjóð.
Í september 2008 kom Ingibjörg Sólrún fram í sjónvarpi hér heima til að fullvissa lýðinn um að fjármál landsins væru í hinu allra besta ástandi.
Síðan flaug Ingibjörg Sólrún til Bandaríkjanna á vit Öryggisráðsins - þó svo að bankarnir þá þegar veguðu salt á bjargbrúninni.
Í byrjun október 2008 hrundu bankarnir hver um annan þveran hver sína nóttina.
Það er ekki að undra að það sé eftirspurn eftir slíkum mannkosti hjá Sameinuðu þjóðunum.
![]() |
Kemur ekki að rannsókn SÞ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Össur gæti hafa reynt að troða henni í það starf - eða bara eitthvað annað - hún er ekki einu sinni í nefndinni.
Er þetta ekki bara eitt af "tussufínu"spuna-fréttum ráðuneyta Jóhönnu og Steingríms.
Það eiga örugglega eftir að koma fleiri sambærilegar fréttatilkynningar - þetta er ekki fyrsta tignarstaðan sem Ingibjörgu Sólrúnu hefur "boðist" í útlöndum - en svo ekki fengið.
Þetta er nú meira bullið.
![]() |
Ingibjörg Sólrún ekki formaður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
Það er hægt að halda áfram rannsókn þó eignarnáminu sé beitt.
Magma Energy þolir ekki skoðun - vonandi taka þeir á flótta.
En það er spurning hvað "styrkþegarnir"eru ornir margir - það kemur í ljós eftir vettlingatökunum.
Samfylkingin hneigist að sýndargjörningum - í Magma-málinu - Nú reynir á Vg. og fyrir hverju þeir standa.
![]() |
Farið hefur fé betra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Össur í Brussel - í nýju fötum ókrýnda keisarans - þvílík smán fyrir Samfylkinguna og Össur sjálfan.
Össur - nú skaltu grjóthalda þér saman - þú ert umboðslaus.
Þvílík smánar för Össurar til Brussel - Elítan í Brussel hefur fengið nóg af spuna Össurar - þeir vilja ekki láta hafa sig að fíflum - Bjöllu ati Össurar í Brussel er lokið !
Hauspokinn hæfir vel nýju fötum ókrýnda keisarans.
![]() |
Umræðan byggist á staðreyndum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
24.7.2010 | 21:44
Samfylkingin er ekki stjórntæk með neinum - það er öllum ljóst nema þá Samfylkingarfólkinu sjálfu.
Vg. eru greinilega komnir að endapunkti í þrautagöngu sinni með Samfylkingunni.
Hvert málið eftir annað lítur dagsins ljós - Magma Energy - ESB - Æsseif - ....................svo fátt eitt sé nefnt
Þjóðin hefur líka fengið meira en nóg af vanhæfu Samfylkingarfólki sem vinnur leynt og ljóst gegn þjóðarhag ....................burt með það - áður en það gerir landi og þjóð meiri skaða en orðið er.
![]() |
Draugasögur um afarkosti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.7.2010 | 10:54
Sjálfstæðisflokkurinn - nú í stór sókn með 34.6 % fylgi samkvæmt skoðanakönnun Miðlunar ehf. sem gerð var í júní !
39. landsfundur Sjálfstæðisflokksins - sannaði ótvíræða baráttu flokksins fyrir þjóðarhag.
ESB sinnar skafa af sér fylgið - Samfylkingin mælist með 23.8 % nú - var með tæp 30 % í seinustu kosningum.
ESB sinnar í Framsókn - skafa af þeim fylgið sem mælist nú með 7.6 % hefur tapað helmings fylgi frá síðustu kosningum.
Útrásar"víkingum" er hafnað hvar í flokki sem þeir standa.
![]() |
Sjálfstæðisflokkur í sókn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)