LÍÚ - Talar máli Íslands í erlendum fjölmiðlum varðandi makríl veiðar innan íslenskrar lögsögu - Þeir láta ESB heyra að Íslendingar eru þéttir í lund og kvika hvergi fyrir hótunum!

Í yfirlýsingu sem LÍÚ sendi í erlenda fjölmiðla segir að Ísland eigi fullan rétt á að veiða makríl innan íslensku efnahagslögsögunnar á sama hátt og Norðmenn og aðildarríki Evrópusambandsins hafi rétt á makrílveiðum innan sinna efnahagslögsögu.

Frábært hjá Landsambandi íslenskra útvegsmanna að gera þessum kúgurum ljóst að þeir hafa ekkert með málin að gera á Íslandi - þeir halda þó ekki að makríllinn sem hangir í torfum hér upp við bryggjur fari að snúa sér til annarra átta og synda inn í efnahagslögsögu Evrópubandalagsríkjana eða norska lögsögu - þeir ættu bara að senda makrílnum hótunar bréf.

Frábært hjá LÍÚ að sýna þessum loddurum að Íslendingar séu þéttir í lund og kviki hvergi fyrir hótunum ESB ................


mbl.is Sendu yfirlýsingu til erlendra miðla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband