Færsluflokkur: Evrópumál
En málinu verður ekkert drepið á dreif þó málið fari í rannsóknarferli.
Afturkalla og ógilda verður ólöglegan gjörninginn við Magma Energy - NÚ þegar .............
orkuaudlindir.is
Undirskriftasöfnun - Björk Guðmundsdóttir - Jón Þórisson - Oddný Eir Ævarsdóttir - standa fyrir undirskriftasöfnuninni - í þessum skrifuðu orðum höfðu 9517 skráð sig - gerum betur í þágu þjóðar.
Tekur undir kröfu um rannsókn Magma-máls | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eftir ESB - Evrópuferð Össurar - um þvera og endilanga Evrópu þar sem hann jós yfir lyga þvælu um Íslendinga - hægri - vinstri - sjálfum sér til stór skammar og þjóðinni til stór skaða -
Eins og því að meirihluti þjóðarinnar væri hlynntur inngöngu í ESB - nokkuð sem öllum er ljóst að er hauga lygi og veldur ótta í Brussel.
Síðan tekur Össur beina leið - far til Kína - þangað sem Katrín Júlíusdóttir hafði nýlega verið.
Voru þau þar í slægðar-för með samsuðu við ESB - engum skyldi detta til hugar að ferðalög þeirra tveggja til Kína hafi verið án vitneskju í Brussel.
EN - Hvað voru þau að gera ? - Það þarf að fá upplýst áður en blautri tuskunni verður hent framan í þjóðina !
Það þarf að stoppa þetta landráðalið - ekki seinna en strax - .
Össur í Kína | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.7.2010 | 11:27
Ekki furða þó Evrópa kveiki - Þetta staðfestir þá staðreynd að Ísland er algjörlega sjálfbær!
Þetta var með kjötið - Það verður ekki langt í að erlenda pressan fer að segja frá því að makríll og þorskur veiðist á snærisspotta og öngul við bryggjur landsins - þar séu börn og fullornir við veiðar í soðið fyrir fjölskyldur sínar.
Fer frétt og flýgur............
ESB - gefur út tilskipun - Veiðar á makríl og þorski bannaðar - við bryggjur Íslands á snærisspotta og öngul - Össur stekkur til og útfærir tilskipunina til vonar og vara - því hann hefur þegið mútur.
Ísland er sjálfbært - Látið engan segja ykkur annað !
Fleira fé en fólk á Íslandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.7.2010 | 15:47
Þeir láta ekki á sig ljúga þarna í Brussel - nú er látið glingra í smáaura bauknum - til tómrar háðungar - þjónkunarliði sínu í ríkisstjórn Jóhönnu og Steingríms!
Þeir vona að smá aura hringlið geri þjóðina jafn mútuþæga og landstjórnina.............
Ó - NEI -Ó NEI - Eigið þið ykkar smá aura sjálfir í Brussel til að stoppa í fjárlaga göt síðustu 14 ára sem ekki hafa fengist samþykktir ársreikningar fyrir hjá ESB.............
En mikil er græðgi ykkar fyrir Íslandi - á það að stoppa í fjárlagagötin? - Gleymið því !
Þverpólitískur samstöðu fundur gegn ESB aðild á Lækjartorgi á föstudaginn kl. 17
Fjölmennum - sameinuð stöndum vér !
Íslandi allt !
Ísland á nú rétt á ESB-styrk | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þetta sagði fulltrúi Borgarahreyfingarinnar í nefndinni Björk Sigurgeirsdóttir í viðtali við fréttastofu RÚV sjónvarp í kvöld fréttum.
Þá kom þar einnig fram að fulltrúi Magma Energy hafi staðfest að dótturfélag fyrirtækisins í Svíþjóð væri skúffufyrirtæki og það hafi verið stofnað í samráði við iðnaðarráðuneytið.
Björk sagði að um einkennilega meðfer á lögum um erlenda fjárfestingu sé að ræða.
Hún sagði einnig að formaður nefndarinnar og fulltrúi Samfylkingarinnar hafi bannað nefndarmönnum að tjá sig um störf nefndarinnar opinberlega.
Jafnframt sagði Björk að nefndin hafi vitað lengi að um sýndargjörning var að ræða.
Nefndin um erlendar fjárfestingar klofnaði í afstöðu sinn til kaupa kanadiska fyrirtækisins Magma Energy á HS Orku í gegnum dótturfélag í Svíþjóð.
Meirihlutinn taldi kaupin ekki brjóta í bága við lög.
Fulltrúar Vinstri grænna og Hreyfingarinnar - töldu að kaupin væru ólögleg og vísuðu þar í tvö lögfræðiálit máli sínu til stuðnings.
Björk Sigurgeirsdóttir fulltrúi Hreyfingarinnar segir álit meirihlutans hafi verið pantað af forustu Samfylkingarinnar.
Fréttina er hægt að nálgast á ruv.is
Ræddu hvernig lögin virkuðu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Harma samþykkt landsfundar um ESB | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.6.2010 | 13:15
Valhallar-lúðurinn hljómar ! - Við stöndum vörð um þjóðarhag !
Þrengir ekki stöðu Sjálfstæðisflokksins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Og víst er að 39. landsfundur Sjálfstæðisflokksins var afar gagnlegur - vinnusamur eftir sígildum hugsjónum og stefnu Sjálfstæðisflokksins - þar ríkti samhugur og samstaða fjöldans og lýðræðisleg vinnubrögð.
Þó svo að einhver ca. 5 % ESB sinna finni sig ekki heima í Sjálfstæðisflokknum og vilji þar af leiðandi leita annarra leiða þá er það ekki sá fjöldi að um einhvern "klofning" geti verið að ræða - þó svo að ESB sinnar reyni að blása það upp sem slíkt.
Fólki er alveg frjálst að segja sig úr flokknum.
Óþarfi að sundra flokksmönnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.6.2010 | 11:53
Mikill meirihluti þjóðarinnar vill að aðildarumsókn Samfylkingarinnar að ESB - verði dregin til baka - NÚ ÞEGAR - !
Allur fjár-austur Samfylkingarinnar í ESB aðildarviðræður verði einnig stöðvaður - NÚ ÞEGAR - !
Hornsteinn þjóðfélagsins heimilin eru hrakin og smáð vegna fjárskorts - en 7000 000 000 krónur áætla Jóhanna - Össur og Steingrímur að moka í ESB ferlið - jafnvel meira .
Fólk sem hagar sér svona með almanna fé gegn þjóðarvilja og þjóðar hag - Jóhanna - Össur og Steingrímur þið eigið að víkja - tafarlaust !
Meirihluti vill draga umsókn um aðild til baka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.6.2010 | 10:32
Rannsókn á Icesave-málinu - Sigurður Kári Kristjánsson og 15 aðrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa lagt fram þingsályktunartillögu um rannsókn - !
Rannsókn á embættisfærslum og ákvörðunartökum íslenskra stjórnvalda og samskiptum þeirra við bresk og hollensk stjórnvöld í Icesave-málinu.
Afar brýnt mál til rannsóknar.
Rannsókn á Icesave-málinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |