Færsluflokkur: Bloggar
12.11.2009 | 16:19
Mótmæla álögum á heimilin í landinu ! Jóhanna ! - Steingrímur ! - HALLÓ ! - hlusta !
" Heimilin í landinu eru ekki botnlaus - sjálftökusjóður - stjórnvalda og illa rekinna fjármálastofnana.
Heimilin eru viðskiptavinir fjármálafyrirtækjanna - ekki mjólkurkýr - og samskipti við þau skulu byggð á virðingu - sanngirni - réttlæti og jafnræði"
Þetta segir í tilkynningu frá Hagsmunasamtökum heimilanna !
Jóhanna - Steingrímur - HALLÓ - hlusta..............................!
![]() |
Mótmæla álögum á heimilin í landinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
12.11.2009 | 13:09
Enn fjarar undan Samfylkingunni - hvernig á annað að vera ? - Jóhanna mælist með -15% - traust í Skoðanakönnun á Útvarpi Sögu!
Útvarp Saga birti á hádegi í dag niðurstöðu úr skoðanakönnun sem staðið hafði frá hádegi í gær.
Könnunin hljóðaði svo - Hvaða forustumanni stjórnarflokkanna treystir þú best ?
Niðurstaða könnunarinnar hljóðar svo - Bjarni Benediktsson Sjálfstæðisflokki - 29 % - Steingrímur J. Sigfússon Vg. - 26 % - Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Framsóknarflokki - 21 % - Jóhanna Sigurðardóttir Samfylkingunni - 15 % - Margrét Tryggvadóttir Hreyfingunni - 9%
![]() |
Samskipti við Bandaríkin með besta móti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.11.2009 | 15:19
Var ekki ríkissjóður rekinn hallalaus - í tíð Geirs H.Haarde forsætisráðherra og fjármálaráðherra!
Hvernig varð þessi gífurlegi hallabúskapur ríkissjóðs til og af hverjum stofnaður - hverjar eru skuldirnar - ekkert af þessu fæst upplýst af núverandi forsætisráðherra Jóhönnu Sigurðardóttur og fjármálaráðherra Steingrími J. Sigfússyni.
Hver er það sem komið hefur ríkissjóði að skranflokki - lánshæfis ? Steingrímur ! - Jóhanna ! svarið þið því .
Það eina sem þau stagast sífeldlega á er að skattahækkanir muni stoppa upp í fjárlagagatið - þetta eiga að vera nægjanlegar upplýsingar fyrir skattgreiðendur - starfandi eða atvinnulausa!
Samfylkingarfólkið á Alþingi talar um skattahækkanirnar séu til að "hreinsa upp eftir óstjórn efnahagsmála" ?
En eftir hverja er sú "óstjórn" ? Gott væri að Samfylkingarfólkið svaraði því ...........!
Lánshæfismatið á eftir að marg versna eftir aðkomu þessarar vanhæfu ríkisstjórnar - þeirra Jóhönnu og Steingríms - Ennþá verra verður það þegar þeirra lang þráðu lán frá AGS og allra hinna hafa fundið leiðina í fang þessara fjármála vitringa - sem ekkert kunna með fjármuni að fara -! En hverjum verður þá um kennt - Ekki þeim sjálfum..................Neeeeei - örugglega ekki.
Sjálfstæðisflokkurinn - verður hann ekki áframhaldandi sökudólgurinn fyrir - ÖLLU -? Hvort sem hann á það eða - EKKI - Hvað annað.
![]() |
Lánshæfismat ríkisins lækkað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
11.11.2009 | 12:02
Nú er eins gott fyrir forseta ASÍ að hann standi í lappirnar fyrir það fólk sem hann þiggur af laun sín!
En hætti að jarma í kór Samfylkingarinnar ! Ætli hann sér að sitja beggja vegna borðsins - verður honum örugglega lesinn textinn á Íslensku !
![]() |
Enn verið að máta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þar sem um jafn veigamikið mál væri að ræða fyrir landsmenn krafðist Bjarni þess að skattkerfisbreytingin og ætlaðar skattahækkanir yrðu teknar á dagskrá þingsins tafarlaust utandagskrár - annað yrði látið víkja af dagskrá -þingsins.
Sagði Bjarni það gjörsamlega óviðunandi að þingmenn væru látnir frétta af slíkum stórmálum í fjölmiðlum.
Fleiri þingmenn frá Sjálfstæðisflokki og Framsókn óskuðu eftir að komast á mælendaskrá en var meinað það af forseta þingsins - Samfylkingarþingmanninum Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur með sínum alkunna samfylkingar yfirgangi og hroka.
All mikið uppþot varð í þingsalnum og þingmenn Sjálfstæðisflokksins gengu út!
Málalyktir urðu þær að - Utandagskrárumræða verður á föstudaginn um skattkerfisbreytinguna og skattahækkanir Bjarni Benediktsson hefur framsögu en Steingrímur J.Sigfússon situr fyrir svörum.
Það má sko alveg búast við heitum umræðum þar............manneskja mín !
![]() |
Brjáluð leið - ekki blönduð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
10.11.2009 | 21:40
Pukrið og valdníðslan í forgangi hjá vanhæfri "ríkisstjórn" Jóhönnu og Steingríms ! Tugir ráðninga í ráðuneytin frá áramótum - án undangenginna auglýsinga !
Eru það pólitískar hreinsanir sem liggja að baki þessum fjöldaráðningum.
Alls eru það 42 sem hafa verið ráðnir til starfa í ráðuneytunum - 10 hafa verið ráðnir í fjármálaráðuneytið.
Það er ekki niðurskurður eða aðhaldsaðgerðir hjá þessu fólki.
Kanna þarf frekar hvað að baki þessu ráðninga-æði liggur - starfsvið laun og annað!
Er þetta viðbót á starfsfólki - eða hefur öðrum verið hent út - eða eru á þröskuldinum á útleið vegna pólitískra hreinsanna?
Graf alvarlegt mál - frá hinum ýmsu sjónarhornum !
![]() |
Tugir ráðnir án auglýsinga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.11.2009 | 23:50
Algjör hörmung eins og að vera svörtur Benz - máluðum með bleikri málningu ! - vændiskaupanda stinpill!
Þarna sat hann í Kastljósi yfirmaður KSÍ - að verja kreditkorthafa KSÍ - fyrir þjóðinni - vegna milljóna króma sukk nætur á hóruhúsi í Zurich - ferð sem þessir tveir fóru í á vegum KSÍ !
Þvílík smán - ég yrði ekki undrandi þó foreldrar tækju börnin sín burt frá slíkum "íþróttaklúbb" SVEI - !
![]() |
Dýrt næturævintýri Íslendings í Sviss |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
9.11.2009 | 22:14
Al-brjáluð skatta og atvinnustefna rkisstjórnarinnar ! Á að trúa því að úrræðaleysið sé svona algjört ?
Auðvitað þarf að ná inn fjármagni í ríkiskassann - en það gerist ekki með hækkun skatta á atvinnulaust fólk !
Þeir sem hafa vinnu sem fer því miður fækkandi þeir leiðast út í svarta atvinnustarfsemi til að lifa af - eða flytja úr landi !
Ríkisstjórnin tekur stöðu - gegn - atvinnusköpun - aftur tekur "ríkisstjórnin" til skattpíningar-aðferðarinnar með skattahækkun á viriðisauka - orku og auðlindaskatt - vegaskattur - bensínskattur - bara nefnið það - þetta er alveg snar-brjálað !
Það sem fæst í ríkiskassann með skattahækkunum á illa stödd fyrirtæki og atvinnulaust fólk skellur ekki hátt í ríkiskassanum.
Það á að sækja peningana þangað sem þá er að finna.
Skattleggja inngreiðslur í séreignalífeyrissparnað.
Skera niður hjá ríkinu sjálfu - lækka laun - enginn á að hafa hærri laun en 500 þúsund krónur í mánaðarlaun - enginn undanskilinn - gert með lagasetningu ef þörf krefur - lagasetning sem ekki þarf að taka lengri tíma en "kreppu-hala"lögin hans Árna Páls - sem sögð voru til bjargráða fyrir heimilin - en er bara ein stór blekking
Ekki meiri blekkingar fólk lætur ekki blekkjast !
Ríkisstjórnin þarf að taka raunverulega á greiðsluvanda heimilanna - heimilin sem eru hornsteinn þjóðfélagsins.
![]() |
47% skattur á launatekjur? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.11.2009 | 20:34
5 karlar skipa nýkjörna stjórn Íslenska lýfeyrissjóðsins - 2 konur eru af 3 varamönnum!
Hefði ekki verið heppilegra að halda kynja jafnræði í stjórninni ?
Hver er það sem skipar í slíka stjórn ?
![]() |
Ný stjórn Íslenska lífeyrissjóðsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
9.11.2009 | 11:13
JÁ - einmitt - ó-já -! Glitnir með 139 milljarða króna í glatkistunni. - Kom alveg óvænt í ljós ! Hvað er í gangi ?
Hvað er með íslenska fréttamiðla - eru þeir sofandi ? - Eða eru þeir "múlbundnir"? - Af hverjum þá?
Það er eins og íslenskir fréttamiðlar hafi sína fréttaveitu um íslensk málefni úr erlendum fréttamiðlum.
Hafa íslenskir fréttamiðlar þá fyrst leyfi til að fjalla um óþægileg íslensk mál - þegar þau - hvort sem er - eru komin í umfjöllun - í erlendum fréttamiðlum ?
Hvað er í gangi ................?
![]() |
Kroll rannsakar Glitni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)