Blásið til útburðar úr stjórnarráðinu !!!

Landráða gjörningum valdstjórnar Jóhönnu og Steingríms mótmælt - harðlega.

 


mbl.is Icesave-fyrirvörum breytt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Athugaðu það Steingrímur - þú hefur ekki heimild til neinna samninga við Hollendinga og Breta í Æsseif-deilunni !

Þú hefur heldur ekki nokkra heimild til að undirskrifa hvorki eitt né neitt fyrir hönd þjóðarinnar varðandi Æsseif-deiluna.

Það er ekki þingmeirihluti fyrir landráðagjörningi ykkar Jóhönnu við hollensku og bresku fjárkúgarana.

Þú hefur heimild til - og það eitt var þér ætlað að gera - að kynna fyrir Bretum og Hollendingum afgreiðslu Alþingis varðandi Æsseif frá í sumar.

Allt annað sem þið Jóhanna eruð að pukrast með varðandi Æsseif er í algjöru heimildarleysi - Steingrímur - og á þinni eigin ábyrgð gerist þú þar brotlegur.


mbl.is Viðbrögð á báða vegu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Norska-aðferðin gegn vændi - !

Á níunda áratugnum varð mikil aukning á götuvændi í Osló.

Það var þess tíma kreppa og versnandi lífskjör.

Lögreglan var með mikinn viðbúnað gegn þessum faraldri - með sífeldar lögreglurassíur á vændiskonurnar - töluvert var talað um þetta götuvændi og rassíur lögreglunnar í fjölmiðlum.

Í framhaldi af þessum sífeldu aðgerðum lögreglunnar gegn vændiskonunum og mikilli aukningu á þessu götuvændi - fóru konur í Osló að fá áhuga á því hverjir það væru sem keyptu vændið - hverjir væru kúnnarnir?

Þessar konur létu sér ekki nægja að pæla í því hverjir kúnnarnir væru - þær tóku sig til og gerðu áhlaup á vændiskaupendurna - það fór þannig fram að þær máluðu bílana þeirra með sterk-bleikri málningu.

Þessi aðför gegn vændis-kúnnunum vakti mikla athygli og umtal ekki síst í fjölmiðlum.

Það sem einna mesta athygli fékk í umræðunni var hvað - vændiskúnnarnir voru á dýrum og flottum bílum.

En það voru ekki allir sem hrópuðu - HÚRRA - fyrir framtakinu - það heyrðust líka maðvirkni-raddir sem vorkenndu aumingja mönnunum sem fengu fínu bílana sína útataða í bleikri málningu og hvað áttu þeir svo að segja heima hjá sér.

Ætla mátti að þeir sem meðvirkni-raddirnar áttu hafi verið þeir "heppnu"sem sluppu fyrir hornið frá bleiku-málningunni - með dýru og fínu bílana sína !


Biskupinn ber ábyrgð á að prestar í starfi innan þjóðkirkjunnar - sinni sínum preststörfum - án þess að misbjóða siðgæðisvitund manna!

Biskupinn - ber ábyrgð á að í söfnuðum þjóðkirkjunnar séu við störf prestar sem ekki misbjóða siðgæðisvitund manna.

Gunnar Björnsson hefur misboðið siðgæðisvitund safnaðarbarna Selfosskirkju - ætti hann því að sýna þá kristilegu auðmýkt að víkja þegjandi og hljóðalaust til hliðar úr því sem orðið er.

Nokkuð hlýtur að skorta á dómgreind prestsinns og kristilegt kærleiksþel til sóknarbarna Selfosskirkju að hann skuli ekki átta sig á þessu.


mbl.is Hörð gagnrýni á biskupinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alþingi Íslendinga - er ekki í liði með erlendum fjárkúgurum - þó valdstjórn Jóhönnu sé það - Össur!

Það er ekki þingmeirihluti fyrir föðurlandssvikum valdstjórnar Jóhönnu - þó hún segist vera "á síðustu metrunum í átt að lausn í Icesave-deilunni" - Stór orð það Össur -  !

Þú veist það - Össur - það er ekki meirihluti fyrir föðurlands-svikum valdstjórnarinnar ....!


mbl.is Erum á síðustu metrunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alvöru landamæravarsla - úrsögn Íslands úr Schengen !

Senda erlenda brota-menn - glæpa-menn - til sinna heimalanda umsvifa laust! -                         Hvorki að láta þá spígspora hér um götur og torg né heldur að fylla fangelsi landsins - sem þeir nýta án efa til tengslamyndunar innbyrðis og við íslenska afbrota-menn sem sitja inni samtímis.

Það á ekki að leggja upp í hendurnar á þeim slíkar aðstæður.

Útlendingarnir sem settir eru inn - eiga að vera í einangrun á meðan þeir bíða eftir að fara til síns heima.


mbl.is Götuvændi stundað í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bráðabyrgðarskýrslu 1. nóv.frá rannsóknarnefnd Alþingis - TAKK -

Skýrslan verði öllum aðgengileg - ekkert pukur og yfirhylmingar..........!

Lokaskýrslu má svo birta í febrúar þegar skýrslan verður endanlega tilbúin - sama með þá skýrslu - til birtingar öllum án allra undanbragða..........!


mbl.is Rannsóknarskýrslu seinkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spuna-brella - RÚV ! - Æ - Æ - Aumingja RÚV verður nú að éta ofan í sig spuna-brelluna !

RÚV - sagði frá því í kvöldfréttum í gær að þrír fréttamenn á Morgunblaðinu hefðu sagt upp störfum - og lét jafnframt að því liggja að ástæða uppsagna blaðamannanna - væri ný ráðinn ritstjóri blaðsins Davíð Oddsson - og jafnframt að allt væri á niðurleið á Mogganum ......nema hvað?

Í dag er birt yfirlýsing frá Björgvini Guðmundssyni einum af þeim blaðamönnum sem sagt hafa upp störfum á blaðinu - þar kemur fram að aðrar ástæður voru að baki uppsögnum blaðamannanna - en Davíð Oddsson.

Æ - Æ - Aumingja - RÚV - "RÚV allra landsmanna" verður nú að éta ofan í sig - spuna-brelluna.!


mbl.is Yfirlýsing vegna fréttar RÚV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfstæðisflokkurinn siglir þöndum seglum!

Kemur ekki óvart - það kemur skýrt fram í máli manna - sem kallar hann gjarnan "bjargráða-flokkinn" til sjávar og sveita!

Efnahagstillaga Sjálfstæðisflokksins hefur vakið athygli og þykir úrræða-væn.

Mál manna er marktækasti kompásinn.


mbl.is Ríkisstjórnin rétt héldi velli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæpatíðni í boði Schengen!

Er ekki orðið meira en tímabært að Ísland segi sig úr Schengen samstarfinu - og innleiði þess í stað að nýju landamæra-eftirlit.

Óheft innstreymi á glæpa klíkum til landsins sem vaða hér uppi og skjóta rótum - ætti að vera nægileg ábending um þörf á aukinni landamæravörslu - áður en ástandið versnar enn frekar.

Tilviljun ein réði því að mál litháensku stúlkunnar rataði beint inn á borð lögreglunnar við komu hennar til landsins - Brjálæðisleg varnar viðbrögð stúlkunnar í flugvélinni - urðu hennar bjargráð - við því ástandi sem hún hafði verið þvinguð í af útlendum glæpalíð.

Enginn veit hvað mörg svipuð mál hafa átt sér hér stað - og fengið að grassera í skjóli leyndar og eftirlitsleysis.

Úrsögn Íslands úr Schengen - og aukin landamæra-varsla er nauðsynleg.


mbl.is Ekki vitað hvar konan er
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband