Glæpatíðni í boði Schengen!

Er ekki orðið meira en tímabært að Ísland segi sig úr Schengen samstarfinu - og innleiði þess í stað að nýju landamæra-eftirlit.

Óheft innstreymi á glæpa klíkum til landsins sem vaða hér uppi og skjóta rótum - ætti að vera nægileg ábending um þörf á aukinni landamæravörslu - áður en ástandið versnar enn frekar.

Tilviljun ein réði því að mál litháensku stúlkunnar rataði beint inn á borð lögreglunnar við komu hennar til landsins - Brjálæðisleg varnar viðbrögð stúlkunnar í flugvélinni - urðu hennar bjargráð - við því ástandi sem hún hafði verið þvinguð í af útlendum glæpalíð.

Enginn veit hvað mörg svipuð mál hafa átt sér hér stað - og fengið að grassera í skjóli leyndar og eftirlitsleysis.

Úrsögn Íslands úr Schengen - og aukin landamæra-varsla er nauðsynleg.


mbl.is Ekki vitað hvar konan er
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband