Það er þetta með andófistana í VG.- þeir velta út úr skápunum - tjá sig af eldmóði - með faglegri þekkingu - á vitrænum nótum!

Það vekur uppljómun og smá von - það er þá einn sem talar fyrir þjóðarhag í ríkisstjórnarflokkunum......?

En hvað svo - röddin er þögnuð.....? - Andófsistanum var troðið inn í skápinn aftur - kannski með dúsu - það heyrist ekkert lengur - JÆJA - !

En leyfum Lilju Mósesdóttur að njóta vafans í þetta sinn - greinin hennar í Morgunblaðinu í dag er faglega og dómgreindarlega mjög góð -

Lilja segir þar meðal annars - að gera þurfi róttækar breytingar á efnahagsáætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.......!

Einnig segir Lilja að margra mánaða tafir Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á umsömdum lánagreiðslum sjóðsins til Íslands sé ekki hægt að líta öðruvísi á en þannig - að sjóðurinn hafi einhliða sagt upp samkomulaginu við Íslendinga. Þetta er alveg rétt hjá Lilju.........!

Endurteki hér - Grein Lilju er mjög góð og best að lesa hana í heild sinni - hún er í viðhengi við færsluna.

Nú er bara að vona að greinarhöfundi verði ekki troðið aftur inn í þöggunarskáp Steingríms og Jóhönnu. 


mbl.is Gera þarf róttæka breytingu á efnahagsáætlun AGS
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hugmyndaþing Reykjavíkurborgar !

Einstaklega áhugavert  tækifæri fyrir borgarbúa til að hafa áhrif á borgarmálin með virkum hætti.
mbl.is Hugmyndaþing Reykjavíkurborgar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samkór gerfi elítunar hefur nánast einokað pallborðs umræðuna í Silfri Egils !

Það hefur engum dulist og heldur ekki það - að Silfur Egils er í boði - RÚV - "allra landsmanna" !

Ein óvænt afbrigði urðu í síðasta þætti Silfursins - þá voru að borðinu boðnir 2 sjálfstæðismenn og i sama þætti  fékk 1 sjálfstæðismaður til viðbótar - að tjá sig á skjá - frá Akureyri = 3 sjálfstæðismenn í einum og sama þætti í Silfri Egils.......!

Má kannski búast við því að Björn Bjarnason og Davíð Oddsson  verði í næsta þætti Silfur Egils ?


mbl.is Björn og Egill elda grátt silfur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hollusta Guðfríðar Lilju Grétarsdóttur við þjóð sína - stóð ekki lengi ! - Í tvær vikur - !

Þingflokksformaðurinn þeirra Vg. á í tilvistarkreppu - hún er komin með samfylkingar áráttuna - sem lýsir sér í að vera altekin og heltekin af Sjálfstæðisflokknum og öllum hans " illu " verkum.

Í Kastljósinu á mánudag í þinginu daginn eftir - eyddi Guðfríður Lilja sínum dýrmætu mínútum í að tala um "hræðilega" fortíð Sjálfstæðisflokksins -  hræðilega " minnisblaðið " oft um talaða - frá haustmánuðum 2008 - sem bundið hafði "ríkisstjórn" Jóhönnu og Steingríms í Æsseif klafann hryllilega .......!

Æsseif-málið og "minnisblaðið" - allt var þetta sko "hræðilega"Sjálfstæðisflokknum að kenna......!

Síðan með hönd á sínu hjarta staðhæfði Guðfríður Lilja að nýja Æsseif samnings tillagan sem "ríkisstjórnin"ætlaði með fyrir þingið - væri svo miklu - miklu betri - en fyrirvara afgreiðsla Alþingis frá í ágúst - sem Guðefíður Lilja sjálf var mikill talsmaður fyrir  - ÞÁ - !

Kúvending og tilvistarkreppa Guðfríðar Lilju segir allt sem segja þarf um ástandið innan stjórnarflokkanna.


Von að spurt sé - Birgir Ármannsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins!

Guðfríður Lilja Grétarsdóttir þingflokksformaður Vg. upplýsti sjálf fyrir alþjóð að ríkisstjórnin og ríkisstjórnarflokkarnir hefðu samþykkt svo kallaðan Æsseif"Svavars-samning" óséðan að einum þingmanni og ráðherra undanskyldum.

Nú þegar taka 2 er í þinginu á Æsseif og gefið er í skyn að stjórnar flokkarnir "muni vonandi" samþykkja þann landráða-gjörning þeirra Jóhönnu og Steingríms.....................................!              Þá er að sjálfsögðu eðlileg og sjálfsögð fyrirspurn Birgis Ármannssonar hvort stjórnarflokkarnir hafi kynnt sér "ný samningsdrög"vegna Æsseif.


mbl.is Lásu þau Icesave-plöggin?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hollusta Guðfríðar Lilju við þjóð sína - stóð ekki lengi ! - Í tvær vikur -?

Þingflokksformaðurinn þeirra Vg á í tilvistarkreppu - hún er komin með Samfylkingar áráttuna - sem lýsir sér í að vera altekin og heltekin af Sjálfstæðisflokknum og öllum hans " illu " verkum.

Í Kastljósinu í fyrra kvöld og svo í þinginu í dag eyddi Guðfríður Lilja sínum dýrmætu mínútum í að tala um "hræðilega" fortíð Sjálfstæðisflokksins - hræðilega "minnisblaðið" oft um talaða frá haustmánuðum 2008 - sem bundið hafi "ríkisstjórn"Jóhönnu og Steingríms í Æsseif klafann hryllilega.  - Æsseif-málið og "minnisblaðið" - allt var þetta sko Sjálfstæðisflokknum að kenna....!

Síðan með hönd á sínu hjarta staðhæfði Guðfríður Lilja að nýja Æsseif samnings tillagan sem "ríkisstjórnin" ætlaði með fyrir þingið væri svo miklu - miklu betri - en fyrirvara afgreiðsla Alþingsins frá í ágúst............!

Augljós tilvistarkreppa og kúvending Guðfríðar Lilju segir best til um ástandið innan stjórnarflokkanna !

 


mbl.is Fyrirvörum varpað fyrir róða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úr því að efnahagur landsins er í svona góðu lagi Gylfi Magnússon "viðskiptaráðherra"!

Er þá ekki bara að hætta við niðurskurðinn á Landspítalanum - niðurskurð hjá öldruðum og öryrkjum og öðrum sem illa eru staddir - niðurfellingu lána heimilanna - útrýma atvinnuleysinu - styrkja atvinnuvegina......................allt í uppbyggingu og réttan kúrs fyrir alla !

Þetta hefur bara allt verið í plati Gylfi Magnússon - það er gott að þú ert vaknaður.........!

Enda bendir milljarða austurinn í Æsseif og ESB og allt hitt bruðlið - biðlaunin og ofurlaunin.......það bendir til þess að nóg sé til af peningum í landinu - nú vilja landsmenn fá sinn hlut af þessum peningum - við sættum okkur ekki lengur við að vera féflett - Gylfi Magnússon - Skilaðu þessu til Jóhönnu og Steingríms....... Gylfi !


mbl.is Ísland ekki á leið í þrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrstu svörin við spurningalista ESB eru farinn til Brussel - er haft eftir Össuri Skarphéðinssyni!

Áður en málefnanefndir og vinnuhópar hafa verið skipaðir - sem eiga að vera þverpólitískar samkvæmt því sem ákveðið hefur verið.

Verksvið þessara nefnda á m.a. að vera að sjá um spurninga-lista og svör til Brussel.

Sama er að segja um samninganefndina ekki er vitað til að það hafi verið skipað í hana - né heldur formaður þeirrar nefndar.

Ekkert af málsgögnum sem varðar ESB hefur verið þýtt yfir á íslensku - svo vitað sé.

En svörin hafa verið send...............Hvað er í gangi - eða ekki í gangi ?


mbl.is Fyrstu svör farin til Brüssel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Atkvæðagreiðsla á Alþingi fyrir afbrigðum vegna flutnings frumvarps um ríkisábyrgð á Æsseif!

Afbrigðin voru felld í atkvæðagreiðslu með 29 á móti því að veita afbrigðin - gegn 23 sem studdu afbrigðin.
mbl.is Icesave ekki á dagskrá í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SteingrímurJ. "fjármálaráðherra" missti sig og fór á límingunni í ræðustól á Alþingi í dag!

Það var hárbeitt gagnrýni Tryggva Þórs Herbertssonar þingmanns Sjálfstæðisflokksins á efnahagsþætti Æsseif málsins - sem fóru eitthvað  illa í Steingrím.

Tryggvi Þór er eins og kunnugt er mikill hagfræði spekingur - vafalítið hefur það verið hagfræði-speki Tryggva sem fékk svo á ófaglærðan fjármálaráðherrann Steingrím - að hann missti stjórn á tungu sinni og vísi-fingri - og benti Tryggva og öllum þingheimi á - með háðs glósum - hvað lávaxinn Tryggvi Þór væri.

Passaði ekki alveg inn í þingsköpin...............!

Enda varð Birgir Ármannsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins harðorður í garð Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra fyrir hneykslanlega framkomu í garð Tryggva.

 


mbl.is Sagði framkomu Steingríms hneyksli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband