8.3.2010 | 13:24
Stjórnarkreppa hefur verið viðvarandi í tíð "ríkisstjórnar" Jóhönnu og Steingríms !
Við öðru er ekki að búast af vanhæfri minnihluta-stjórn - með bullandi innbyrðis ágreining og óeirðir -klofning - sem skrúfaður hefur verið niður af formönnum flokkanna - með skoðanakúgun á stjórnarþingmenn.
Trúverðugleiki þessarar "stjórnar" kom fram í þjóðaratkvæðagreiðslunni þar sem 93.2 % höfnuðu vinnubrögðum vanhæfrar ríkisstjórnar Jóhönnu og Steingríms - með stóru - NEI -
Erlendis frá er ekki um meira traust að ræða á þessari ríkisstjórn - en - STÓRT - NEI - Það var augljóst af kröfu Breta og Hollendinga um að komu stjórnarandstöðunnar að Æsseif- viðræðunum.
Ríkisstjórn Jóhönnu og Steingríms getur ekki látið eins og þjóðaratkvæðagreiðslan sé "marklaus skrípaleikur" !
![]() |
Björn Valur: Gæti leitt til stjórnarkreppu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
8.3.2010 | 02:07
Æsseif er úr þínum höndum Steingrímur 93.2 % kjósenda gáfu þau skýru skilaboð í þjóðaratkvæðagreiðslunni !
Þjóðin hefur talað Æsseif verður ekki á þínu borði Steingrímur - þar koma aðrir að.
Hvað kostuðu mistök þín þjóðina - við Æsseif 1 samningagerðina ? - Hvað kostuðu mistök þín þjóðina - við Æsseif 2 samningagerðina ?
Það er nóg komið af svo góðu - axlaðu þína ábyrgð Steingrímur og segðu af þér - þér er ekki stætt á að hunsa þann vilja kjósenda !
![]() |
Vorum nálægt samkomulagi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
7.3.2010 | 21:32
Afþökkum lánin frá norðurlöndunum og AGS - notum þá fjármuni sem við eigum !Til hvers að lúra á þeim ?
1. ) Bankarnir eru fullir af peningum - bíðandi eftir hverju - tvöþúsund milljarðar - notum þá. 2 ) Lífeyrissjóðirnir fjármunum þeirra er ekki betur varið en að nota þá núna - þetta eru peningar landsmanna. 3. ) Auka fiskveiðar - auka kódann. 4 ) Snúa okkur til - Kínverja og Rússa þeir eiga sameiginlegra hagsmuna að gæta á norðurslóðum með okkur og báðar þjóðirnar okkur vinveittar. 5 ) Æsseif málið til dómstóla. 6 ) Fáum úttekt hjá þar til gerðri opinberri rannsóknarnefnd á því tjóni sem hryðjuverkalaga beiting Breta olli okkur. 7 ) Afturkalla aðildarumsóknina að ESB - STRAX -
![]() |
Lán frá Finnum háð Icesave |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
En Jóhanna og Steingrímur halda sig í veruleikafirringunni og afneituninni - og tala á þeim nótum að þau tvö muni sjá áfram um viðræðuferlið við Breta og Hollendinga þar sem frá var horfið á föstudag.
93 % kjósenda höfnuðu aðkomu Jóhönnu og Steingríms í Æsseif- málum - þau geta ekki litið fram hjá því að það voru 1.7 % kjósenda sem sögðu - JÁ - sem er þeirra fylgi - Steingrímur og Jóhanna eru umboðslaus - kjósendur lýsa vantrausti á ríkisstjórn Jóhönnu og Steingríms.
Áfram haldandi viðræður um Æsseif deiluna - eiga Bretar og Hollendingar að sækjast eftir - ekki Íslendingar eins og Jóhanna og Steingrímur hafa gert á einstaklega óskynsamlegan hátt eins og fleira í þeirra háttsemi varðandi Æsseif-málið.
1. Opinber hlutlaus matsnefnd rannsaki þann skaða sem Íslendingar urðu fyrir við beitingu Breta á hryðjuverkalögunum - Metið verði fjárhagslegt tjón og annar skaði sem hryðjuverkalaga beiting Breta olli Íslendingum ( vísa til bloggsíðu Kristins Péturssonar sem fjallar þar nánar um slíka rannsókn og mikilvægi hennar )
Engar viðræður verði við Breta og Hollendinga fyrr en rannsóknarskýrsla frá framangreindri rannsókn liggur fyrir.
![]() |
Bretar vilja sýna sveigjanleika |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
7.3.2010 | 14:45
Hafi norska ríkisstjórnin ekki afhjúpað sína sauðagæru þá gerir utanríkisráðherra þeirra Jonas Gahr Störe það rækilega í Stavanger Aftenblad!
Með ómálefnalegum - HROKA - sýnir Störe umfram allt annað - ÓTTA - Skyldi engan undra - með framgöngu sinni gagnvart Íslendingum hefur Störe og hans samflokks-stjórnarlið sjálfir sett sig í frystikistuna.
Lega Íslands á norðlægum slóðum verður ætíð og ávalt óbreytt...................það vita Norðmenn.Þar hjálpar ekkert Norsurunum að "eiga peningana sína í olíusjóðnum".................!
Nú er það þeirra að horfast í augu við sína eigin skammsýni - á norðurslóðum kemur dagur á eftir þennan dag og þá væri betra fyrir Norðmenn að eiga Íslendinga fyrir vini.
Norðmenn hafa alltaf óttast Rússana þeir eiga þá ekki að vinum - Rússar hafa alltaf verið hliðhollir Íslendingum.
Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur á skammt eftir - hún heyrir brátt sögunni til á Íslandi - Herra Störe. Hverjir verða þá "vinir" Störe á Íslandi ?
![]() |
Ekki frekari lán til Íslands |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.3.2010 | 01:00
Forseti Íslands herra Ólafur Ragnar Grímsson les norðurlöndonum textann af fullri einurð og réttmæti - í viðtali við Aftenposten í Noregi.
![]() |
Segir Norðurlöndin hafa beitt Ísland þrýstingi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.3.2010 | 00:39
Æsseif 1 lögin frá því í ágúst 2009 tóku aldrei gildi vegna þess að Bretar og Hollendingar samþykktu þau aldrei - sem betur fer!
Æsseif 2 sem forsetinn vísaði til þjóðarinnar hékk að hluta saman við Æssei 1 -- þannig að hvorugur samningurinn er nú í gildi - alveg sama hvað óskhyggja Jóhönnu og Steingríms reynir að ljúga að þjóðinni.
Skilyrði fyrir gildistöku Æsseif 1 var að B & H samþykktu samninginn á formlegan hátt - það gerðu þeir aldrei - sem betur fer.
Síðust tölur úr kosningunum segja 1.5 % JÁ - það er fylgi Jóhönnu og Steingríms - þau hafa ekkert annað að gera en að segja af sér nú þegar.
![]() |
Jóhanna: Kom ekki á óvart |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.3.2010 | 23:46
Ríkisstjórn Jóhönnu og Steingríms er kol fallin - skjalfest með kosningu 1.6 % JÁ - það er þeirra fylgi !
Stjórnin er líka minnihluta stjórn - kúgun Jóhönnu og Steingríms dugar ekki lengur til að halda fætlunum af stjórninni saman. Stjórnin er bæði FALLIN - og - líka klofin ...........!
Bessastaðir - 10 - í fyrramálið .....................með hrað-lestinni !
![]() |
Stjórnarandstaðan fagnar niðurstöðunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.3.2010 | 23:00
Glæsileg þjóðaratkvæðagreiðsla - TAKK - til allra sem sýndu samstöðu og sögðu - NEI -!
Að sjálfsögðu TAKK - TAKK - til forseta Íslenska lýðveldisins herra Ólafs Rafnars Grímssonar sem með djörfung gekk fram fyrir skjöldu og opnaði dyrnar til lýðveldisins fyrir þjóð sína með sinni styrku hendi.
Einnig - TAKK - til forsetans fyrir öll fjölmiðlaviðtölin og kynningu á málstað Íslendinga í erlendum fjölmiðlum - það gerir enginn betur en Ólafur Ragnar Grímsson.
![]() |
Nær allir segja nei |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
5.3.2010 | 18:23
Sýnum samstöðu - flykjumst á kjörstað og segjum - NEI - við lögum um ríkisábyrgð á Æsseif- gjörninginn!
![]() |
Ríflega 11 þúsund hafa kosið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)