Frétt ársins - Vel af sér vikið hjá Guðbirni Guðbjörnssyna að taka sig til og ætla að smala "öllum" ( sem ekki eru margir )ESB sinnum úr Sjálfstæðisflokknum og Framsókn inn í - eina rétt - "útrásarvíkinga"!

Frábær hreinsunar hugmynd - að aðstoða þá villuráfandi ESB sinna - út úr gömlu flokkunum - inn í eina rétt - ESB sinna - Hamarinn verður ekki klyfin af ESB sinnum innan Sjálfstæðisflokksins - það veit Guðbjörn.


mbl.is Segir viðbrögð góð við nýjum flokki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lilja Mósesdóttir er lögð í einelti af stjórnarþingmönnum - það er ekkert leyndarmál - það gerist fyrir opnum tjöldum í fjölmiðlum.

Jóhanna hefur sent Lilju "Móses." hótunartóninn í fjölmiðlum - Árni Þór Sigurðsson í Kastljósinu gekk í fótspor Jóhönnu og sendi öllum þrem þingmönnum Vg. Lilju - Atla og Ásmundi - sem ekki studdu fjárlöginn - já hann sendi þeim tóninn að hætti Jóhönnu og Steingríms - hótanir - kúgun og valdníðsla - sömu aðferðum beitta þau gagnvart almenningi - þannig eru opinberir stjórnunarhættir óhæfrar ríkisstjórnar Jóhönnu og Steingríms - sem vegna vanhæfni sinnar eru komin á - ENDA-stöð -JÁ - á endastöð - umboðslaus -
mbl.is Jónína Rós segir ekki um níð að ræða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jæja - þar kom að því að Jóhanna flækti sig í eigin neti - hún misnotar aðstöðu sína og beitir svo blekkingum og hroka ofríkisins - þegar hún er krafin svara af Þinginu.

En Guðlaugur Þór Þórðarson lætur Jóhönnu hvorki kúga sig eða blekkja - Gott hjá Guðlaugi að sýna Jóhönnu í tvo heimana og krefja hana um sannleikann upp á borðið - hún þarf á því að halda að það sé saumað að henni. 


mbl.is Svör ráðherra til Ríkisendurskoðunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Margar - flestar tillögur SUS til sparnaðar í ríkisrekstrinum upp á 49,9 milljarða eru mjög góðar.

Segið svo að "íhaldið" sé ekki hjálplegt - við lítilmagnann Steingrím - sem ekki dettur neitt annað til hugar í sínum ríra kolli en - skatta hækkanir .
mbl.is Leggja til að útgjöld lækki um 49,9 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lítið leggst fyrir kappann Ögmund Jónasson.

Hann lætur vesæla Jóhönnu kúga sig til hlýðni við landráð - með Æsseif fjárkúgun á íslensku þjóðinni.
mbl.is Icesave á endastöð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að sjálfsögðu sker stjórnarandstaðan ekki Jóhönnu óstjórnina úr Æsseif snörunni.

Þegar eftirfarandi texti úr  Æsseif 3 "samkomulagi" milli  Íslendinga - Breta og Hollendinga er skoðaður sætir furðu að slíkt skuli flokkast undir samkomulag." En þar segir að Bretar og Hollendingar geti einhliða sagt sig frá samkomulaginu ef ákveðin skilyrði hafi ekki verið uppfyllt fyrir 31. desember næstkomandi.

Meðal annars þurfi Alþingi að hafa samþykkt Æsseif lögin og þau tekið gildi - og þau þurfi að vera orðin bindandi - þannig að ekki verði hægt að nema þau úr gildi með neinum hætti - til að mynda með þjóðaratkvæðagreiðslu.

Með öðrum orðum þurfi Alþingi að hafa samþykkt lögin og forseti Íslands að hafa staðfest þau fyrir áramót.

Eftir 31. desember geta Bretar og Hollendingar hætt við samkomulagið með tilkynningu til tryggingarsjóð innistæðueigenda og íslenskra stjórnvalda." þetta kemur fram á vísi.is sem hefur Æsseif 3 samkomulagið undir höndum.

Framangreind tilvitnun í þetta svo kallaða samkomulag er ærið nóg til að segja NEI og aftur NEI - þvílíkur hroki - yfirgangur og kúgun. Hverslags samningamaður er þessi Lee Buchheit - er það ekki íslenska þjóðin sem greiðir honum laun fyrir vinnu við þetta svo kallaða samkomulag - Hvað fékk hann margar milljónir greiddar - ég get ekki séð að hann hafi verið að vinna fyrir íslensku þjóðina. 


mbl.is Icesave verður stjórnarfrumvarp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jóhanna og Steingrímur vona á hjálp frá "íhaldinu" við Æsseif fjárkúgunina á þjóðina!

Eftir þeirri hjálp frá "íhaldinu" meiga þau Jóhanna og Steingrímur bíða - LENGI - LENGI - Það yrði styttra fyrir þau í landsdóm ..........................
mbl.is „Nú er þetta allt orðið ég einn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

JÁ - einmitt - á nú að ráða fleiri aðstoðarmenn fyrir ráðherrana - Er þetta sparnaðurinn með sameiningu fáðuneyta að fjölga í stjórnsýslunni?

Það er ennþá nóg af kandídötum í Landsbankanum frá hruninu í aðstoðarmanna stöður ráðherra í Jóhönnu hirðina - og svo í mannauðs hirð hennar líka - Þó engar líkur séu á því að Jóhönnu óstjórnin hangi svo lengi að hún nái því að fjölga í hirð sinni. 
mbl.is Breyta á lögum um Stjórnarráðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ráðinn hefur verið sérfræðingur í "samfélagslegri ábyrgð" til Landsbankans - Til að bæta hvað ? Ímyndina ?- Hjálpi mér heilagur!

Fyrst hefði átt að spúla út spillingarliðinu sem fyrir er í bankanum - frá toppi og niður á gólf - Blekkingar duga ekki lengur á fólkið........................... Umboðsmaður "viðskiptavina" hvað gerði hann?
mbl.is Samfélagsleg ábyrgð Landsbankans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur er umboðslaus - 6. mars 2010 við þjóðaratkvæðagreiðsluna um Æsseif -

Þar sem 98 % kjósenda sögðu - NEI - við vilja ríkisstjórnar Jóhönnu í Æsseif - þar missti ríkisstjórnin umboð sitt - það sem óstjórn Jóhönnu  hefur framkvæmt eftir það er ólöglegt og ekki marktækt - Jóhanna á víkja strax .......Nú síðasti  Æsseif gjörningur Jóhönnu óstjórnarinnar - er marklaus.
mbl.is Hvetur Lilju til að samþykkja fjárlögin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband