Gríðarlega góð fundarsókn hjá Steingrími - 10 manns sóttu fyrsta fund hans í landsfunda-herferð hans um landið - Góður fundur ? - Bjartsýnis fundur ?

Það er til mikils að vinna til að "auka"fylgið Steingrímur - 10 manns betra en enginn - En skola ekki mörgum á þing - ekki einu sinni - gríðarlega bjartsýnum Steingrími einum - Það getur nú varla verið svartari pólitísk - framtíðarsýn fyrir Steingrím Joð.  
mbl.is Steingrímur gríðarlega bjartsýnn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar kemur að kjarasamningum þá er ríkiskassinn tómur - þá er kreppa hjá Jóhönnu-óstjórninni!

En þegar það gildir Æsseif - ESB gæluverkefni óstjórnarinnar - eða einkavinavæðinguna í stjórnsýslunni - þá er ekki kreppa í ríkissjóði - þá vogar Jóhönnu-óstjórnin sér að misfara með almanna fé gegn þjóðarhag og þjóðarvilja. - Burt - með óhæfa - Jóhönnu-óstjórnina - á haugana með hana - STRAX -
mbl.is Gæti hófs í kröfugerð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Birgittu málið - er það ekki öllu alvarlegra en meintar njósnir bandaríska sendiráðsins - í ruslafunnum nágrana sinna við Laufásveginn?

HA - hvað segir þú um það - í samanburði Ögmundur? Hvað finnurðu marga fleti á Birgittu álinu - svona í einni "reykás"hringferð ?
mbl.is „Sérkennilegt og grafalvarlegt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Össur freistar þess að fleyta stjórnarsamstarfinu á milli daga -

með ómarktækum kjaftavaðlinum......................
mbl.is Fundur VG hreinsaði loftið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Takið eftir myndinni með fréttinni.

Myndin af þeim Lilju og Atla tekin að loknum fundi - segir meira um Vg.fundinn en nokkur orð - og afsannar digurbarkalegt málskrúð Steingríms eftir fundinn - um bjartar framtíðar horfur "velferðarstjórnarinnar".
mbl.is Umræðum VG ekki lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Reynslan hefur sýnt að það er aldrei verra í vændum en þegar Steingrímur talar um góða fundi -

Hvort sem fundirnir eru af staðnir eða þá að þeir standi fyrir dyrum - eins og væntanlegur þingflokksfundur Vg. sem haldinn verður á morgun.
mbl.is „Þetta verður góður fundur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Orð í tíma töluð - Sextíu ára og eldri bjóði fram fyrir væntanlegar Alþingiskosningar!

Það bjargar þjóðinni frá "besta"flokknum - Ó - JÁ - ...............
mbl.is Gáfaðast um sextugt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar grunnframfærslan stendur ekki undir nauðþurftum fólks - skapast skortur og - NEYÐ - hjá fólki!

Stjórnvöld ganga markvisst fram í því að aumingjavæða almenning og orðið fátækt er ekki til í þeirra orðræðu - en hefur þess í stað fengið heitið þriðji geirinn í stjórnkerfinu-

 28. október 2010 hélt "velferðar"ráðherrann Guðbjartur Hannesson ráðstefnu um þriðja geirann - öðru nafni fátæktina því ekki stóð til hjá stjórnvöldum að fyrirbyggja meiri fátækt í landinu - heldur auka hana enda er annar geirinn öðru nafni milli stéttin á hraðferð niður í þriðja geirann í hungurbiðraðirnar í hundraðavís.

Yfirskrift ráðstefnunnar var "Hjálp til sjálfshjálpar" - Hjálparsamtökin sem staðið hafa fyrir hungurbiðröðunum voru boðin til ráðstefnunnar - EN - til hvers voru hjálparsamtök boðuð til þessarar ráðstefnu - JÚ - til að knýja á um - MEIRA - MEIRA  - framlag frá hjálparsamtökum svo stjórnvöld hefðu óheft flæði fjármagns í ESB - Æsseif og fleirmilljarða króna framlag til fátækra í Evrópulöndum - í staðin fyrir að vinna að lögbundinni og stjórnarskrá varinni velferð landsmanna á Íslandi. -

Síðan er það fyrsti geirinn því án hans væru ekki - annar og þriðji geirinn til - En fyrsta geirann skipa þeir sem halda öllu sínu - nema milljarða skuldum og kúlulánum sem afskrifað er - hjá fyrsta geiranum................................

Jóhönnu-óstjórnin brýtur stjórnarskrár varin landslög - en í 76. gr. Stjórnarskrárinnar segir svo. Öllum sem þess þurfa, skal tryggður í lögum réttur til aðstoðar vegna sjúkleika, örorku, elli, atvinnuleysi, örbirgðar og sambærilegra atvika - Öllum skal tryggð í lögum réttur til almennrar menntunar og fræðslu við sitt hæfi. - Börnum skal tryggð í lögum sú vernd og umönnun sem velferð þeirra krefst.

Verum bara raunsæ - allt hækkar nema framfærslan - atvinnuleysið eykst og fátæklingunum fjölgar - HVAÐ - SVO..... í janúar ? 

Að afloknu kastljósi kvöldsins þar sem Vilborg Oddsdóttir fulltrúi hjálparstarfs kirkjunnar tjáði sig með slíkum eindæmum "faglega" að eigin sögn - um fátæktina í þjóðfélaginu og hungurbiðraðirnar - er ekki  við hæfi annað en að það komi fram reynsla nauðstaddra af því að leita eftir aðstoð hjá hjálparstarfi kirkjunnar - Eftir því sem orð fer og flýgur frá nauð stöddum og leitað hafa til hjálparstarfs kirkjunnar - þá verður ekki "fagmennskan"þar á bænum í askana látin - hjá nauðstöddum.


mbl.is Tilbúnar til að skoða matarkort
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jóhanna hefði átt að gera eins og útvarpsstjórinn - láta ekki sjá sig á skjánum.

Það hefði farið best á því - því ekki var spekinni fyrir að fara - frekar en fyrri daginn.
mbl.is Uppbygging og vöxtur framundan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til upplýsinga fyrir Jórunni Frímannsdóttur fyrrverandi borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins.

Pistill Jórunnar Frímannsdóttur sem hún skrifar á síðu Evrópu-sinna segir mikið og margt um villurávandi ESB sinna innan Sjálfstæðisflokksins sem ekki hafa ratað til síns heima - ennþá. En þar sem augljóst er - að Jórunn Frímannsdóttir er ekki vel að sér í þingmálum Sjálfstæðisflokksins né heldur virðist hún þekkja til landsfundasamþykkta Sjálfstæðisflokksins eftir pistli hennar að dæma -  skal það því hér með upplýst fyrir Jórunni að - frumvarp það sem hún vitnar til í pistli sínum - þess efnis að ESB aðildarumsókn Íslands verði dregin til baka - fyrsti flutningsmaður frumvarpsins var Unnur Brá Konráðsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins - með stuðningi  þingflokks Sjálfstæðisflokksins og einnig stuðning frá  öðrum þingflokkum nema frá Samfylkingunni - Jórunnar ástsæla flokki samkvæmt pistli hennar að dæma - Hefði ekki verið betra fyrir Jórunni Frímannsdóttur að leita sér upplýsinga áður en hún ber vandræðagang - öngþveiti og angist ESB sinna á torg. 

Síðan eru það landsfunda samþykktir: Landsfundur markar stefnu flokksins sem er æðsta stofnun Sjálfstæðisflokksins - Eftir landsfundasamþykktum ber forustu flokksins að fara - Jórunn ætti að kynna sér Landsfundarsamþykktir frá 2007 og 2009....................................

Stærstu mistök sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur nokkurn tíman gert var að fara í stjórnarsamstarf með Samfylkingunni - þannig að það er óþarfi fyrir Jórunni að sjá fram til þess með glampa í augum að "íhaldið" skeri Samfylkinguna niður úr ESB snörunni.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband