Fólkið vonar og þráir að Jóhanna láti verða af hótunum sínum - og segi af sér!

Bara drífa sig á Bessastaði Jóhanna - Eða senda Hrannar með bréfið til forseta! Bara drífa sig !
mbl.is Hótaði ekki forsetanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjóðaratkvæðagreiðsla gegn Icesave 16. apríl

Ef það á að kjósa um fleiri mál í þeim kosningum en Icesave - þá væri tilvalið að kjósa um að aðildarumsókn að ESB verði dregin til baka.
mbl.is Kosið 16. apríl?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn ein pantaða yfirlýsingin frá Jóhönnu "ó"stjórninni - nú frá sjálfum Lee Buchheit.

Hvað kostar ein svona yfirlýsing og hver borgar? Öllum lögmálum er snúið á haus eftir Jóhönnu-uppskriftinni - því meiri skuldsetning - "hækkar lánshæfiseinkunn íslenska ríkisins verði Icesave-lögin samþykkt" og íslenska þjóðin sett á vonarvöl. - Skammist ykkar svo.
mbl.is Ánægður með að Icesave-lög voru samþykkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

www.kjosa.is kl. 23:46 höfðu - 41010 skráð sig á - www.kjosa.is

Undirskriftasöfnunin er ennþá í rífandi gangi og verður haldið áfram þar til forseti Íslands herra Ólafur Ragnar Grímsson hefur gefið út sína ákvörðun.
mbl.is Yfir 40.000 skráð sig á kjósum.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

kjósum.is - gegn ólöglegum Icesave III

Valdið er hjá þjóðinni www.kjosum.is
mbl.is Samingurinn betri en sá fyrri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kjósum ! Samstaða þjóðar gegn Icesave - www.kjosum.is

Síðan er komin á netið  www.kjosum.is

Unnur Brá Konráðsdóttir er eini þingmaður Sjálfstæðisflokksins sem ekki sveik Icesava landsfundarsamþykkt flokksins!

En landsfundar samþykktin hljóðar svo" Við segjum - NEI -við löglausum kröfum Breta og Hollendinga í Icesave málinu " og það gerði Unnur Brá hún sagði - NEI - við Icesave á Alþingi Íslendinga - Hún Unnur Brá svíkur ekki þjóð sína.
mbl.is Afstaða þingflokksins óskiljanleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú setur margan sjálfstæðismanninn hljóðan um stund - En ekki leggi - !

Að fulltrúar Sjálfstæðisflokksins þrír að tölu skuli voga sér að ganga fram gegn þjóðar hag og gegn miklum meirihluta vilja  sjálfstæðismanna - gegn Landsfundarsamþykkt Sjálfstæðisflokksins sem hljóðaði svo "við segjum - NEI - við löglausum kröfum Breta og Hollendinga í Icesave málinu".

Þingmenn hafa ekki leyfi til að ganga fram með slíkum hætti gegn þjóðarhag - eru þessir þremenningar í fjárlaganefnd sem hafa sæti sín þar sem fulltrúar fyrir Sjálfstæðisflokkinn - að misnota aðstöðu sína í þágu ógnarstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur -

 Skammist ykkar öll þrjú  fyrir sviksemina - Þorgerður Katrín - Ásbjörn Óttarsson og Kristján Þór Júlíusson - með þessari framgöngu ykkar sannast þá að það sem kvisast hefur - það er þá satt.

Þjóðin á að kjósa um Æsseif - 3 - hún á sjálf að ákveða fyrir sig - hvort hún verður hneppt í skuldaánauð vegna glæpagengis Landsbankans.

NEI við Æsseif ! - NEI við ESB ! - NEI við kúgun og valdníðslu ógnarstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur.

Vér mótmælum!

Íslandi allt !


mbl.is Þjónar hagsmunum að ljúka Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórnvöld kunna ekki að skammast sín - Ólöglegar kosninga um stjórnlagaþing "hafi ekki valdið neinum skaða" Þessa klausu tyggja ráðamenn upp - hver eftir öðrum -

eftir úrskurð Hæstaréttar um ólögmæti kosninga til Stjórnlagaþings. - Auðvitað hafa þessi hraksmánarlegu mistök ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur valdið margskonar skaða og jafnvel tjóni til dæmis fjárhagslegu tjóni fyrir skattborgarana svo um munar - frambjóðendur og kjósendur hvað með þá? Eru þeir auka atriði - það er kominn tími til að fólkið sé ekki sett í afgangsstærð hjá stjórnvöldum !

Það voru 10 þúsund sem kusu utan kjörfundar í Laugardalshöllinni - þegar það kom í ljós að talning atkvæða  var mjög seinvirk þá var jafnframt upplýst að 10 þúsund atkvæði væru vafa atkvæði eða ógild - voru þetta ekki utan kjörfundar atkvæðin úr Laugardalshöllinni ? - Er það ekki til skaða fyrir kjósendur ef fyrirsjáanlegt var að atkvæðagreiðslan þeirra væri ólögleg - er það ekki skaði fyrir  frambjóðendur að kjörbréf þeirra skyldi þurfa að ógilda.

Hverslags stjórnvöld eru þetta sem þjóðin hefur mátt þola í tvö afdrifarík ár sem Jóhönnu óstjórnin hefur límt sig á ráðherrastóla án þess að valda nokkru sem helst sem landsstjórn þarf að geta valdið til úrlausnar og þjóðarhag - ALLT sem þessi stjórnvöld hafa gert er gegn vilja og hagsbóta fyrir þjóðarhag - Skammist ykkar svo - ÖLL - Jóhönnu óstjórnin og snautið burt úr stjórnarráðinu -STRAX - ! - Stjórnlagaþing verður auðvitað blásið af - það verður ekki lengt í hungurbiðröðunum með ólögmætum fjármagns-austri Jóhönnu og Steingríms í stjórnlagaþing - NÚ er það - STOPP -


mbl.is Enn óvissa um stjórnlagaþingið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað fellst í hugtakinu "flugumaður"? Var það ekki dálítið hæpið eða á gráu svæði í það minnsta af Birgittu að fara með Julian Assange (Wikileaks) í veislu í bandaríska sendiráðið 13.des.2010

Er hann ekki þar með orðinn "flugumaður" í þessari veislu- ? - í boði þingmannsins Birgittu Jónsdóttur.
mbl.is Var gestur Birgittu í sendiráðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband